fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Pressan

Lavrov fer hörðum orðum um Bandaríkin – „Þeir leyna því ekki að þetta snýst um olíu“

Pressan
Sunnudaginn 26. apríl 2026 12:16

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Utanríkisráðherra Rússlands, Sergei Lavrov, sakar Bandaríkin um að hafa snúið baki við diplómatískum hefðum í þágu eigin hagsmuna og þá einkum hvað varðar orkumarkaði. Þetta kom fram í viðtali við rússneska ríkissjónvarpið á föstudag.

„Bandaríkin hafa opinberlega lýst því yfir að enginn geti sagt þeim fyrir verkum,“ sagði Lavrov og hélt áfram: „Þeim er aðeins annt um eigin velferð sem þeir eru tilbúnir að verja með öllum ráðum – valdaráni, mannráni eða morði á leiðtoga þjóða sem búa yfir náttúruauðlindum sem Bandaríkjamenn þurfa á að halda.

Venesúela og Íran, bandarískir kollegar okkar, leyna því ekki að þetta snýst um olíu. Þeir eru með það á stefnuskrá sinni að ná yfirráðum á alþjóðlegum orkumörkuðum.“

Vísaði Lavrov þarna til handtöku Nicolas Maduro, forseta Venesúela, í hernaðaraðgerðum Bandaríkjahers í janúar sem og drápsins á Ayatollah Ali Khamenei, æðsta leiðtoga Írans, í sameiginlegum loftárásum Bandaríkjanna og Ísraels í lok febrúar.

Lavrov fullyrðir að Bandaríkin hafi nú einangrað Evrópu og stundi það nú að hvetja Evrópuríki til að yfirgefa Nord Stream-gasleiðsluna sem flytur rússneskt gas til Þýskalands. Eins hafi Bandaríkin stutt við kröfur Evrópusambandsins um að Ungverjaland og Slóvakía hætti að kaupa rússneskt gas. Lavrov segir þetta hættulega þróun og að Bandaríkin séu að reyna að endurvekja nýlendutímann.

Bandaríkin séu að beita sér fyrir lausn Úkraínustríðsins en geri það út frá efnahagslegum forsendum sem megi meðal annars sjá í yfirlýsingum stjórnvalda um gríðarleg efnahagsleg tækifæri í Úkraínu.

„Allt sem ég er að lýsa er að gerast samtímis. Það er verið að ýta okkur út af alþjóðlegum orkumörkuðum,“ sagði ráðherrann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt