
Hann lét þessi ummæli falla í athugasemd við færslu breska öfgahægrimannsins Tommy Robinson á X. Þar sagði Robinson að „Ungverjaland sé fallið“.
„Dauði Evrópu breiðist út,“ skrifaði Robinson.
Margir evrópskir leiðtogar fögnuðu ósigri Orbáns, sem hefur verið dyggur handbendi Vladímír Pútíns og Donald Trump, ekki síst í ljósi þess að arftaki hans, Péter Magyar, hefur heitið því að endurbyggja samband Ungverjalands við ESB og NATÓ. Þetta samband hefur átt í vök að verjast síðustu 16 árin vegna Orbáns.
Rússneski talsmaðurinn telur að ósigur Orbáns muni verða til þess að ESB hrynji til grunna. „Sjáið til eftir fjóra mánuði hvort ég hafi haft rétt fyrir mér,“ skrifaði hann.