fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Pressan

Norskir hermenn undirbúa sig undir innrás Rússa í nyrsta hluta landsins

Pressan
Sunnudaginn 26. apríl 2026 11:30

Norskir hermenn á æfingu. Mynd:Forsvaret.no

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í Finnmörk, í nyrsta hluta Noregs, undirbúa norskir hermenn sig undir innrás Rússa. Þetta kemur fram í myndbandi sem Sky News birti.

Í þessu tæplega fjögurra mínútna langa myndbandi sjást norskir hermenn á æfingu sem undirbýr þá undir innrás Rússa.

Norsku hermennirnir eru þjálfaðir til að berjast í miklum kulda og í fjalllendi. Einn þeirra er Nora. „Það er mjög mikilvægt að við vitum hvernig á að berjast við þessar aðstæður, af því að ef eða þegar til stríðs kemur, þá verðum við að berjast í veðri eins og þessu,“ segir hún í myndbandinu og bætir við: „Ég hef ekki miklar áhyggjur, sérstaklega ekki þegar ég er hér. Ég veit hvað við erum að gera og ég veit að við erum góð í því sem við gerum.“

Herdeild hennar, Finnmerkur-herdeildin, er aðeins nokkurra mánaða gömul. John Olav Fuglem, yfirmaður herdeildarinnar, sagði að hún hafi meðal annars verið sett á laggirnar af því að Finnmörk skipti Rússa mjög miklu máli. Ástæðan er að Kólaskagi, þar sem rússneski kjarnorkuskipa- og kafbátafloti er með heimahöfn, er nærri.

Sunnar, nærri Bodø, er herstöð grafin inn í fjall. Á skjám í stjórnstöð hennar er fylgst með ferðum allra skipa og flugvéla á heimskautasvæðinu að sögn Sky News.

Rune Andersen, varaaðmíráll, sagði að Norðmenn telji sig bera ábyrgð á að vera augu og eyru NATÓ á þessu svæði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var
Pressan
Í gær

Leiðbeiningar til kvenna – Svona sleppurðu við að elda matinn

Leiðbeiningar til kvenna – Svona sleppurðu við að elda matinn
Pressan
Í gær

Prófessor segir að heimurinn sé á leið inn í stórstyrjöld

Prófessor segir að heimurinn sé á leið inn í stórstyrjöld
Pressan
Í gær

Fær greiddar bætur eftir að áfengi var borið ótæpilega í hana á skemmtiferðaskipi

Fær greiddar bætur eftir að áfengi var borið ótæpilega í hana á skemmtiferðaskipi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Bifvélavirkjar segja þessar fjórar bílategundir sé best að kaupa ekki

Bifvélavirkjar segja þessar fjórar bílategundir sé best að kaupa ekki
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sérfræðingur varar fólk við að steikja beikon í airfryer

Sérfræðingur varar fólk við að steikja beikon í airfryer