fbpx
Laugardagur 07.júní 2025
Pressan

Þessu áttu ekki að henda þegar þú tekur til í svefnherbergjum

Pressan
Laugardaginn 7. júní 2025 11:30

Það þarf stundum að taka til í svefnherbergjum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er kannski kominn tími til að taka til í svefnherberginu eða jafnvel svefnherbergjunum á heimilinu. Þá getur verið freistandi að henda hinu og þessu en þú ættir að stoppa og hugsa þig um tvisvar áður en þú hendir eftirtöldum hlutum.

Hlutir sem tengjast tilfinningum – Gamlir hlutir á borð við bréf, ljósmyndir eða erfðagripir geta virst vera drasl en minningar og tilfinningar tengjast þessum hlutum oft. Íhugaðu að geyma þá í „minningarkassa“ eða jafnvel að finna leið til að koma þeim fyrir á heimilinu svo þeir varðveitist og gegni hlutverki.

Geymslulausnir – Kassar, körfur og sérstök geymslubox virðast kannski vera aðeins of mikið af því góða, sérstaklega ef þau eru tóm eftir tiltekt. En ný hlutverk bíða ef þú endurskipuleggur eða eignast nýja hluti. Það er oft dýrara og krefst meiri tíma að þurfa að kaupa ný geymsluílát síðar.

Klassískur fatnaður og tilheyrandi – Tískan tekur stöðugum breytingum en sumur fatnaður og fylgihlutir eru tímalausir. Svartur jakki, einfaldur kjóll eða gæðaleðurvörur geta alltaf komist inn í fataskápinn á nýjan leik. Ef þetta passar enn og er í góðu standi, þá er þess virði að geyma þetta.

Bækur sem hafa persónulega þýðingu – Þrátt fyrir að þú munir kannski aldrei lesa þær aftur, þá geta ákveðnar bækur haft mikil áhrif á þig. Þær geta verið uppspretta innblásturs eða huggunar og eiga skilið að fá sitt pláss í hillunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Varð fyrir skelfilegri árás tveggja hunda – Birtir myndir af ótrúlegum breytingum eftir 28 aðgerðir

Varð fyrir skelfilegri árás tveggja hunda – Birtir myndir af ótrúlegum breytingum eftir 28 aðgerðir
Pressan
Í gær

Þetta eru hlutirnir sem flugfarþegar gera og flugþjónar hata

Þetta eru hlutirnir sem flugfarþegar gera og flugþjónar hata
Pressan
Fyrir 2 dögum

Uppeldisráð 81 árs DeNiro er einfalt – Börnin á aldrinum tveggja til 57 ára

Uppeldisráð 81 árs DeNiro er einfalt – Börnin á aldrinum tveggja til 57 ára
Pressan
Fyrir 2 dögum

Segja þetta fernt útskýra hvers vegna Musk er að ráðast á „stóra fallega fjárlagafrumvarpið“ – „DREPUM FRUMVARPIÐ.“

Segja þetta fernt útskýra hvers vegna Musk er að ráðast á „stóra fallega fjárlagafrumvarpið“ – „DREPUM FRUMVARPIÐ.“