Trégólf – Það að þvo trégólf oft með vatni og hreingerningarefnum getur skaðað tréð og orsakað mislitun eða afmyndun. Þess í stað er mælt með að ryksuga eða sópa vikulega og moppa bara með rökum klút einu sinni í mánuði eða eftir þörfum.
Örbylgjuofn – Það er auðvitað mikilvægt að halda örbylgjuofninum hreinum en of mikil notkun á sterkum efnum getur skaðað hann að innan. Hyldu matinn, þegar verið er að hita hann, til að draga úr slettum og þurrkaðu matinn, sem sullast, upp samstundis. Góð hreingerning á eins til þriggja mánaða fresti er oft nóg.
Gluggar – Það geta komið rendur á rúður ef þær eru þrifnar of oft og þær geta einnig skaddast. Yfirleitt er nóg að þrífa rúður að innan og utan einu sinni til tvisvar á ári. Undantekningin er ef þær verða mjög skítugar eða mikið af frjókornum sest á þær.
Tréhúsgögn – Of mikil notkun á húsgagnabóni og þrifaefnum getur byggt upp klístraða himnu og skaðað náttúrlega eiginleika trésins. Þurrkaðu vikulega af tréhúsgögnum með þurrum örtrefjaklút og notaðu bón sparlega, bara þegar nauðsyn krefur.
Teppin – Tíð notkun teppahreinsara og efna getur brotið trefjarnar í teppum niður og valdið mislitun. Ryksugaðu teppin vikulega og íhugaðu að fá fagmanneskju til að þrífa þau einu sinni eða tvisvar á ári.
Ísskápurinn – Það er auðvitað mikilvægt að halda honum hreinum en ein góð hreingerning á mánuði er nóg. Þurrkaðu sull strax upp og skipulegðu hvernig er raðað í ísskápinn til lágmarka skipulagsleysi og þörfina fyrir tíð þrif.