Vinnufélagar konunnar, sem starfaði hjá breska heilbrigðiskerfinu, gengu að mati dómstóls of langt í gríni sínu og nú fær konan, sem hetir Lorna Rooke, sem svarar til 5,4 milljóna króna í bætur vegna málsins.
Þetta kemur fram í opinberum skjölum, og er málið kallað „The Darth Vader Incident“ að sögn M. Fram kemur að dómstóll hafi talið málið svo alvarlegt að hann dæmdi Lornu bætur vegna tilfinningalegs álags og fjárhagstjóns.
Lorna starfaði hjá blóð- og líffæraígræðsludeild á bresku sjúkrahúsi og hafði gert það í 18 ár þegar vinnufélagar hennar fylltu út Stjörnustríðsútgáfu af persónuleikaprófi fyrir hennar hönd, án hennar vitundar. Niðurstaðan var að hún passaði við Svarthöfða.
Vinnufélagarnir sögðu að þetta hafi verið grín hjá þeim.
Í persónuleikaprófinu var Svarthöfða lýst sem „einbeittum manni sem sameinar teymið“. En í raun er hann sá sem flestir í vetrarbrautinni hræðast enda Sith Lord sem er þekktur fyrir að kyrkja fólk með hugaraflinu einu saman og að hafa myrt börn.
En Lornu fannst þetta ekki fyndið, þvert á móti fannst henni sem hún væri lögð í einelti, væri einangruð og niðurlægð. Sérstaklega vegna þess að niðurstöðu persónuleikaprófsins var deilt í sameiginlegum spjallhópi starfsfólksins.
Kathryn Ramsden, dómari, sagði í dómsorði að Svarthöfði sé „ þekkt illmenni“ og því sé ekki undarlegt að þetta hafi komið illa við Lorna. „Það er móðgandi að vera líkt við Svarthöfða og það er skiljanlegt að hún hafi orðið döpur vegna þess,“ segir í dómsorði.
Dómstólinn komst að þeirri niðurstöðu að málið hafi ekki átt beinan hlut að máli varðandi uppsögn hennar og ásökunum hennar um mismunun og óréttmæta uppsögn var vísað frá.