Þessu er haldið fram í portúgalska dagblaðinu Correio da Manha í dag. Kemur fram að parið, breskur karl og þýsk kona, hafi verið undir áhrifum áfengis þegar meint slys átti sér stað. Var það systir mannsins í Bretlandi sem hafði samband við lögreglu og sagðist telja að hann byggi yfir leyndarmáli um afdrif Madeleine.
Sagði hún bróður sinn hafa hagað sér undarlega eftir að Madeleine hvarf, en hann hefði aldrei viljað ræða það beint við hana hvort hann vissi hvað varð um Madeleine.
Portúgalska lögreglan er sögð hafa óskað eftir liðsinni þýsku lögreglunnar. Mun lögregla hafa farið þess á leit að leynilögreglumaður myndi reyna að vingast við konuna og fá hana til að játa. Þessari beiðni var aftur á móti hafnað.
Sjá einnig: Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust
„Ákveðið var að einblína eingöngu á rannsókn á Christian Brueckner og hafna öðrum möguleikum,“ segir í fréttinni sem Mail Online vitnar til.
Konan er sögð hafa verið á kaffihúsi nálægt Ocean Club kvöldið sem Madeleine hvarf vorið 2007. Mun nágranni hafa sagt lögreglu daginn eftir hvarfið að hún hefði heyrt hávær rifrildi þar sem karlmaður öskraði eitthvað á þessa leið: „Af hverju tókstu hana með þér?“
Í gögnum lögreglu kemur fram að umræddur maður hafi verið breskur en konan þýsk.
Lögregluyfirvöld í Portúgal leituðu til kollega sinna í Þýskalandi, þar sem konan er búsett þar, og hvatti hana til að skoða hvort konan hefði ekið á Madeleine ölvuð og hvort parið hefði svo losað sig við líkið í sjónum. Í frétt Correiro segir að breski maðurinn sé nú látinn, en ekki liggur fyrir hvort þýska konan sé á lífi.
Ýmsum kenningum hefur verið varpað fram um hvarf Madeleine á síðustu árum, til dæmis að Madeleine hafi vaknað umrætt kvöld og farið út að leita að foreldrum sínum sem fóru út að borða meðan að börn þeirra sváfu.
Þýska lögreglan hefur sem fyrr segir einblínt á Christian Brueckner og telur að hann beri ábyrgð á hvarfi og dauða Madeleine. Umfangsmikil leit að líki Madeleine fór fram nálægt Praia da Luz í vikunni en ekki er talið að neitt markvert hafi fundist. Lögregla er í kapphlaupi við tímann að finna eitthvað sem getur tengt Brueckner við hvarfið, en í september næstkomandi lýkur hann afplánun á sjö ára fangelsisdómi sem hann hlaut fyrir að nauðga rúmlega sjötugri konu.