fbpx
Miðvikudagur 18.júní 2025
Pressan

Fegurðardrottning var pyntuð og myrt af fimm öfuguggum – „Eitt grimmdarlegasta morð sögunnar“

Pressan
Þriðjudaginn 17. júní 2025 22:00

Anita Cobby fyrir miðju. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ástralska fegurðardrottningin og hjúkrunarfræðingurinn Anita Cobby var myrt á hrottalegan hátt í febrúar 1986. Málið var svo hrottalegt að áströlsku þjóðinni brá gríðarlega við fregnir af því. Morðið hefur verið sagt „eitt grimmdarlegasta morð sögunnar“ en lík hennar fannst hangandi í gaddavírsgirðingu.

Daily Star segir að Cobby hafi verið nauðgað og síðan skorin á háls og það svo hrottalega að höfuð hennar hafi nær verið fallið af búknum. Áður en hún var skorin á háls gekk hún í gegnum tveggja klukkustunda „niðurlægingu og ofbeldi“ að því er saksóknari málsins sagði fyrir dómi 1987.

Bræðurnir Michael Murphy, 33 ára, Gary Murphy, 28 ára, og Leslie Murphy, 23 ára, voru fundnir sekir um morðið ásamt John Travers og Michael Murdoch, sem voru báðir 18 ára. Þeir rændu Cobby þegar hún var á leið heim þann 2. febrúar 1986.

Anita Cobby. Mynd:Getty

Nágranni heyrði Cobby öskra þegar fimmmenningarnir námu hana á brott. Hann gerði öðrum nágranna viðvart og sá fór að leita að henni en fimmmenningarnir földu sig í háu grasi og einnig Cobby. Þeir sáu nágrannann síðan aka á brott.

Þeir óku síðan á brott með Cobby. Á leiðinni kýldu þeir hana margoft og nefbrotnaði hún og kjálkabrotnaði. Henni var einnig nauðgað.

Að þessu loknu drógu mennirnir hana inn í hestagirðingu við Reen Road í Prospect og héldu áfram að misþyrma henni og nauðga.

Áhyggjur komu upp meðal fimmmenninganna um að Cobby, sem þeir höfðu afklætt, hefði séð andlit þeirra og vissi nöfn þeirra og var Travers því hvattur til að drepa hana. Hann skar hana þá á háls og var skurðurinn svo djúpur að höfðið datt næstum af. Því næst hengdu þeir lík hennar á gaddavírsgirðingu áður en þeir yfirgáfu vettvanginn.

Lögreglan við morðvettvanginn. Mynd:Getty

Lögreglan handtók þá alla en nokkrir dagar liðu þar til tekist hafði að ná þeim öllum því sumir lögðu á flótta.

Gary Murphy meig á sig af hræðslu þegar hann var handtekinn en þá var hann í felum með Michael bróður sínum.

Við yfirheyrslu sögðu mennirnir, að Travers undanskildum, að Travers væri „klikkaður“ og hefði stært sig af að hafa misnotað dýr kynferðislega áður en hann skar þau á háls. Fimmmenningarnir áttu allir sakarferil að baki og voru þekktir „smákrimmar.“

Lík Cobby fannst 4. febrúar eftir að bóndi tók eftir því að kýrnar hans hegðuðu sér undarlega. Krufning leiddi í ljós að hún var með þrjá stóra áverka á hálsi og þrjá minni. Talið er að hún hafi látist fljótlega eftir að hún var skorin á háls.

Hún var einnig með svöðusár á brjóstum, fótum, mjöðm, höndum og fingrum og áverkar voru víðs vegar um líkamann og á höfði hennar.

Cobby bjó hjá foreldrum sínum en hún var skilin við eiginmann sinn, John Cobby.

Hún fór út að borða með vinum sínum þegar hún hafði  lokið vakt á sjúkrahúsi í Sydney. Hún tók síðan lest heim til Blacktown stöðvarinnar þar sem hún var vön að hringja í föður sinn og fá hann til að sækja sig. En síminn á lestarstöðinni var bilaður og enginn leigubíll við stöðina. Hún ákvað því að ganga heim og varð þá á vegi fimmmenninganna.

Mikil reiði ríkti meðal almennings vegna málsins. Mynd:Getty

Þeir voru allir fundnir sekir um nauðgun og morð og dæmdir í ævilangt fangelsi án möguleika á reynslulausn. Michael Murphy lést af völdum krabbameins 66 ára að aldri en hinir hrottarnir eru í fangelsum í New South Wales og verða þar það sem þeir eiga eftir ólifað.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Harmleikur í Airbnb-íbúð – „Þá væru dóttir mín og barnabarn enn á lífi“

Harmleikur í Airbnb-íbúð – „Þá væru dóttir mín og barnabarn enn á lífi“
Pressan
Í gær

Paradísareyjan sem enginn vill búa á

Paradísareyjan sem enginn vill búa á
Pressan
Í gær

Voru skotin samtals 17 sinnum en lifðu af

Voru skotin samtals 17 sinnum en lifðu af
Pressan
Í gær

Grínaðist með að hún ætti kannski ekki að fara í fallhlífarstökk á föstudaginn þrettánda

Grínaðist með að hún ætti kannski ekki að fara í fallhlífarstökk á föstudaginn þrettánda
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Hún fær að ráða og skyndilega fær hann ekki standpínu“

„Hún fær að ráða og skyndilega fær hann ekki standpínu“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Geta konur ratað?

Geta konur ratað?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hann er kokkur á líknardeild – Þetta er rétturinn sem hann er oftast beðinn um

Hann er kokkur á líknardeild – Þetta er rétturinn sem hann er oftast beðinn um
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fór í fyrstu heimsóknina til tengdaforeldranna – Eiginmaðurinn hafði gleymt að segja henni frá einu mikilvægu

Fór í fyrstu heimsóknina til tengdaforeldranna – Eiginmaðurinn hafði gleymt að segja henni frá einu mikilvægu