New York Times fjallaði um þetta á vef sínum í vikunni.
Vísindamenn komu fyrst auga á loftsteininn, sem fengið hefur nafnð 2024 YR4, skömmu eftir jól og hafa þeir reiknað út stefnu hans og líkur á hugsanlegum árekstri.
Loftsteinninn er talinn vera á milli 40 og 100 metrar í þvermál og nógu stór til að eyða heilli borg eða koma af stað stórri flóðbylgju – lendi hann í sjó.
Sjá einnig: Þetta eru loftsteinarnir sem vísindamenn hafa mestar áhyggjur af
Í frétt New York Times er rætt við David Rankin, stjörnufræðing við University of Arizona, og segir hann að fólk þurfi ekki að miklar áhyggjur. „Þetta eru líkur sem maður vill kannski ekki líta fram hjá en að sama skapi ekki eitthvað sem fólk ætti að missa svefn yfir,“ segir hann og bendir á að líkurnar geti breyst þegar vísindamenn safna frekari gögnum.
Geimferðarstofnanir eins og NASA og ESA fylgjast vel með því sem er að gerast fyrir ofan okkur og hafa ágæta mynd af loftsteinum sem geta ógnað okkur. Þannig er til sérstakur skali, sem kallast Tórínó-skalinn, sem flokkar loftsteina í einskonar áhættuhópa.
Ef loftsteinn fær einkunnina 0 er engin hætta á að hann lendi í árekstri við jörðina en ef hann fær 10 er öruggt að hann lendi í árekstri með skelfilegum afleiðingum. Sem sakir standa situr 2024 YR4 með einkunnina 3.
Aðeins einn loftsteinn hefur fengið hærri einkunn, en það gerðist árið 2004 þegar vísindamenn komu auga á loftsteininn Apophis. Hann fékk einkunnina 4 í desember það ár og töldu vísindamenn að 2,7% líkur væru á árekstri þann 13. apríl 2029. Þegar vísindamenn höfðu safnað frekari gögnum var einkunnin færð í 0 og eru engar líkur á árekstri næstu hundrað árin hið minnsta.