Piltarnir stofnuðu prófíl á stefnumótaappi, sem er einkum ætlað samkynhneigðu og tvíkynhneigðu fólki, og þóttust vera 24 ára samkynhneigður karlmaður sem væri að leita að körlum til að stunda kynlíf með.
Þeir sem gengu í gildruna voru barðir, niðurlægðir, myndaðir og eins og áður sagði var einn þeirra skotinn í höfuðið með loftbyssu.
TV2 Fyn skýrir frá þessu og segir að mál piltanna sé nú fyrir dómi hjá undirrétti í Óðinsvéum í Danmörku.
Í ákærunni kemur fram að í september 2024 hafi piltarnir notað stefnumótaappið Romeo til að mæla sér mót við þrjá samkynhneigða karla og hafi hitt þá alla á einni klukkustund. Þegar þeir hittu þann fyrsta börðu þeir hann, spörkuðu í hann og hótuðu honum lífláti. Þeir eru einnig ákærðir fyrir að hafa slegið hann með hlut sem líktist skammbyssu og að hafa kallað hann barnaníðing.
25 mínútum síðar hittu þeir næsta fórnarlamb. Þeir létu það leggjast á jörðina og lömdu síðan og spörkuðu og stöppuðu á höfði hans. Þeir sökuðu hann um að vera barnaníðing.
Þriðja fórnarlambið var lamið með hafnaboltakylfu, slegið með belti og skotið í höfuðið með loftbyssu. Hann var einnig sakaður um að vera barnaníðingur. Hann hlaut nokkrar heilablæðingar af þessu ofbeldi og þurfti að sauma hann á nokkrum stöðum. Hann var meðvitundarlaus þegar piltarnir skildu við hann.