Það getur skipt máli að velja bíl sem endist lengi. Ekki síst fjárhagslega en einnig út frá því að gera verið viss um að þurfa ekki að fara að huga að bílakaupum á nýjan leik eftir skamman tíma.
Líftími bíls er háður mörgum þáttum, þar á meðal reglulegu viðhaldi og akstursmynstri.
Sumar bílategundir virðast endast lengur en aðrar þótt viðhaldi sé sinnt jafn oft og hjá öðrum tegundum og akstursmynstrið sé það sama.
Þær tíu bílategundir sem eru líklegastar til að endast í meira en 500.000 kílómetra eru:
Mercedez E
Peugeot 406
Citroen Xantia
Toyota Land Cruiser
Mercedez S
Skoda Octavia
Seat Toledo
BMW 5-serían
Audi A6
Mercedez C
Portúgalski miðillinn Postal segir að þessar bílategundir séu dæmi um bíla með mikið rekstraröryggi og bili sjaldan.
Eins og sjá má á listanum fyrir ofan, þá eru þrjú módel frá Mercedes á honum, eitt frá BMW og eitt frá Audi. Allar þessar tegundir eru þekktar fyrir endingargóða bíla.
Sum af módelunum eru ekki lengur í framleiðslu en eru samt vinsæl meðal þeirra sem vilja traustan notaðan bíl.