Laumast er kannski ekki rétta orðið því þeir höfðu flogið um borð. Þetta voru tvær dúfur.
Einn farþeganna náði myndum af annarri dúfunni á flugi inni í vélinni þar til farþegi fangaði hana með jakkanum sínum.
Hann birti færslu á Instagram þar sem hann sagði að önnur dúfan hafi verið fönguð af áhafnarmeðlimum en þegar vélinni hafi verið ekið í átt að flugtaksbrautinni hafi önnur dúfa dúkkað upp.
Talsmaður Delta Airlines staðfesti þetta í samtali við ABC News og þakkaði áhafnarmeðlimum og farþegum fyrir að hafa fangað báðar dúfurnar.
Brottför vélarinnar seinkaði um klukkustund.