fbpx
Sunnudagur 08.júní 2025
Pressan

Landið sem gerði reykingar kynþokkafullar er nú að segja skilið við sígarettur

Pressan
Föstudaginn 6. júní 2025 03:15

Frakkar eru að segja skylið við reykingar.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eftir að hafa hampað reykingum áratugum saman og sveipað þær ákveðnum glamúr, eru Frakkar nú að snúa baki við þeim með nýju reykingabanni sem er það umfangsmesta fram að þessu.

Sígarettur voru ekki bara sígarettur í Frakklandi, þær voru ákveðin yfirlýsing, daður og uppreisn. En fljótlega verður gengið hart fram gegn reykingafólki því 1. júlí taka nýjar reglur varðandi reykingar gildi.

Samkvæmt nýju reglunum verður óheimilt að reykja nær alls staðar á almannafæri þar sem börn geta verið, þar á meðal eru strendur, almenningsgarðar, garðar, leikvellir, íþróttavellir, við skólainnganga og á biðstöðvum strætisvagna.

The Independent skýrir frá þessu og segir að þegar Catherine Vautrin, heilbrigðisráðherra, kynnti nýju reglurnar hafi hún sagt að það verði að sjá til þess að tóbak sé ekki til staðar þar sem börn séu. „Rétturinn til að reykja, honum lýkur þar sem réttur barna til að anda að sér fersku lofti hefst,“ sagði hún.

Sekt upp á sem nemur um 20.000 íslenskum krónum mun liggja við brotum á þessum nýju reglum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 16 klukkutímum

Þessu áttu ekki að henda þegar þú tekur til í svefnherbergjum

Þessu áttu ekki að henda þegar þú tekur til í svefnherbergjum
Pressan
Fyrir 17 klukkutímum

Líktu vinnufélaga sínum við Svarthöfða – Fær 5,4 milljónir í bætur

Líktu vinnufélaga sínum við Svarthöfða – Fær 5,4 milljónir í bætur
Pressan
Í gær

Trump sár og ætlar að losa sig við rauðu Tesluna

Trump sár og ætlar að losa sig við rauðu Tesluna
Pressan
Í gær

Þýsk yfirvöld neituðu að rannsaka par sem grunað var um dauða Madeleine McCann

Þýsk yfirvöld neituðu að rannsaka par sem grunað var um dauða Madeleine McCann
Pressan
Fyrir 2 dögum

Umferðaröngþveiti vegna vandræðalegra mistaka Google

Umferðaröngþveiti vegna vandræðalegra mistaka Google
Pressan
Fyrir 2 dögum

Handtekinn og ákærður fyrir morð nokkrum klukkustundum eftir að hann ræddi við fjölmiðla um dularfullt hvarf táningsstúlku

Handtekinn og ákærður fyrir morð nokkrum klukkustundum eftir að hann ræddi við fjölmiðla um dularfullt hvarf táningsstúlku
Pressan
Fyrir 2 dögum

Endaði í handjárnum eftir misheppnaðan hrekk – Sjáðu myndbandið

Endaði í handjárnum eftir misheppnaðan hrekk – Sjáðu myndbandið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rússneskir hakkarar stálu gögnum frá lögreglunni og réðust á tölvukerfi NATÓ og fleiri

Rússneskir hakkarar stálu gögnum frá lögreglunni og réðust á tölvukerfi NATÓ og fleiri