Árið 1976, þegar Sonia var 28 ára, var hún handtekin ásamt sambýlismanni sínum, Jesse Tafero, fyrir morð á tveimur lögreglumönnum. Þriðji maðurinn, Walter Rhodes, var einnig viðstaddur en hann fékk vægari dóm eftir að hafa vitnað gegn þeim.
Walter þessi var á sakaskrá og hafði brotið gegn skilyrðum reynslulausnar þegar lögregla stöðvaði bifreið þeirra á tiltölulega fáförnum vegi í Flórída. Lögreglumennirnir fundust látnir á vettvangi skömmu síðar og höfðu þeir verið skotnir til bana.
Sonia hélt fram sakleysi sínu allan tímann en var engu að síður dæmd til dauða. Árið 1981 var dauðadómurinn felldur úr gildi og honum breytt í lífstíðarfangelsi.
Það var svo á 10. áratug síðustu aldar að ný gögn komu fram sem vöktu efasemdir um réttmæti sakfellingarinnar á sínum tíma. Ný réttarhöld fóru fram árið 1992 og var Soniu sleppt úr fangelsi í kjölfarið.
Tafero var hins vegar tekinn af lífi árið 1990. Aftakan misheppnaðist reyndar því ekki var notuð rétt tegund af svampi og varð það til þess að eldtungurnar stóðu upp úr höfði hans.
Sonia heimsótti Írland árið 1998 þar sem hún sótti ráðstefnu á vegum Amnesty International. Þar kynntist hún manni að nafni Peter Pringle sem sjálfur hafði verið dæmdur ranglega fyrir tvö morð. Þau gengu í hjónaband nokkrum árum síðar og keyptu sér hús á Írlandi. Pringle lést árið 2023, 84 ára að aldri.
Í frétt Guardian kemur fram að auk Soniu hafi aðstoðarmaður hennar, maður að nafni Kevin Kelly, einnig látist í eldsvoðanum á þriðjudag.