fbpx
Laugardagur 27.júlí 2024
Pressan

Enn eitt dularfullt dauðsfall í Rússlandi

Pressan
Þriðjudaginn 9. janúar 2024 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rússneski blaðamaðurinn Alexander Rybin fannst látinn í vegkanti skammt frá borginni Shakhty í Rostov Oblast síðastliðinn laugardag. Alexander var 39 ára og hafði nýlega hótað að opinbera upplýsingar um spillingu í rússneskri stjórnsýslu.

Alexander var nýkominn heim til Rússlands eftir að hafa heimsótt hafnarborgina Mariupol í Úkraínu en borgin hefur verið á valdi Rússa síðan í maí 2022.

Alexander flutti fréttir frá Mariupol fyrir fréttamiðilinn Rabkor þar sem hann gagnrýndi hversu hægt það hefði gengið að byggja borgina upp. Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefur séð borgina fyrir sér sem einskonar sumarleyfisstað fyrir Rússa við Azov-haf.

Sagðist hann búa yfir upplýsingum um „gríðarlega spillingu“ varðandi fyrirhugaðar framkvæmdir og hafði hann hótað að birta þær áður en hann lést. Ekki liggur fyrir hvernig Rybin lést en dauðsfall hans hefur verið sett í samhengi við önnur dularfull dauðsföll þeirra sem voga sér að gagnrýna rússnesk stjórnvöld.

Um 400 þúsund manns bjuggu í Mariupol fyrir innrás Rússa en borgin var nánast lögð í rúst þegar rússneskar hersveitir réðust þar inn. Talið er að þúsundir hafi látist í sprengjuárásum Rússa. Íbúar Mariupol eru í dag taldir vera um 100 þúsund.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 5 dögum

Ævintýraferðin breyttist í martröð – Hjónin fundust látin í björgunarbát sex vikum síðar

Ævintýraferðin breyttist í martröð – Hjónin fundust látin í björgunarbát sex vikum síðar
Pressan
Fyrir 6 dögum

Sakamál: Hryllingur í smábæ – Dóttirin stumraði yfir líki móður sinnar

Sakamál: Hryllingur í smábæ – Dóttirin stumraði yfir líki móður sinnar
Pressan
Fyrir 1 viku

Einn eftirlýstasti strokufangi Bandaríkjanna sigldi undir fölsku flaggi í 30 ár

Einn eftirlýstasti strokufangi Bandaríkjanna sigldi undir fölsku flaggi í 30 ár
Pressan
Fyrir 1 viku

Árásarmaðurinn ætlaði sér ekki að deyja

Árásarmaðurinn ætlaði sér ekki að deyja
Pressan
Fyrir 1 viku

Loftslagsbreytingar hafa áhrif á tímann samkvæmt nýrri rannsókn – „Þetta er vitnisburður um alvarleika loftslagsbreytinga“

Loftslagsbreytingar hafa áhrif á tímann samkvæmt nýrri rannsókn – „Þetta er vitnisburður um alvarleika loftslagsbreytinga“
Pressan
Fyrir 1 viku

Ökumaður Teslubifreiðar lenti í árekstri og missti stjórn á bílnum í kjölfarið – Sjáðu magnað myndband

Ökumaður Teslubifreiðar lenti í árekstri og missti stjórn á bílnum í kjölfarið – Sjáðu magnað myndband
Pressan
Fyrir 1 viku

600 ára gamall texti líkist vel þekktum texta frá síðari tímum

600 ára gamall texti líkist vel þekktum texta frá síðari tímum
Pressan
Fyrir 1 viku

Er leitinni að Plánetu níu að ljúka?

Er leitinni að Plánetu níu að ljúka?