Þetta segir lögreglan í borginni. Ástæðan er að þjófar nota þessa aðferð til að villa um fyrir fólki. Nýlega lenti maður einn í því í miðborginni að armbandsúri hans var stolið af honum. Hann reiddist svo mikið að hann hljóp á eftir þjófnum.
Það vildi til að leið þjófsins lá fram hjá lögreglumönnum sem áttuðu sig strax á hvað væri í gangi og eltu þjófinn uppi á bíl og náðu honum. Hann hafði þá hent úrinu frá sér en lögregluhundur fann það.
Hinn handteknir er 36 ára Marokkómaður. Aðferð hans gekk út á að hann bað vegfarendur um eld til að kveikja í sígarettu. Fyrrgreindi maðurinn varð við því. Í þakklætisskyni rétti Marokkómaðurinn höndina fram til að þakka fyrir sig. Um leið og hinn tók í hönd hans, reif hann úrið af honum og hljóp á brott.
Talsmaður lögreglunnar sagði í samtali við B.T. að þessi aðferð sé vel þekkt hjá þjófum sem herja á borgarbúa.
Hann hvatti fólk til að vera á varðbergi ef óþekktir aðilar gefa sig að því, biðja um eld, byrja að dansa eða reyna á einhvern annan hátt að dreifa athygli þinni.