fbpx
Föstudagur 17.maí 2024
Pressan

Vísindamenn segja þessa æfingu geta lengt lífið og að allir hafi tíma fyrir hana

Pressan
Fimmtudaginn 2. maí 2024 22:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Næst þegar þú hugleiðir, eða ræðir við einhvern, hvort það sé ekki best að taka lyftuna í staðinn fyrir að ganga upp stigann, þá skaltu muna að það að ganga upp stigann getur bjargað lífi þínu.

Þetta er niðurstaða nýrrar rannsóknar. Hún sýnir að þeir sem ganga reglulega upp stiga eru í minni hættu á að deyja ótímabærum dauða. 24% minni líkur eru á ótímabærum dauða ef fólk venur sig á að ganga upp stigann og er þá miðað við hvaða dánarorsök sem er. Ef aðeins er horft á hjartaáfall, hjartabilun og heilablóðfall þá eru líkurnar á ótímabærum dauða 39% minni.

Metro segir að vísindamenn segi að niðurstöðurnar bendi til að ekki þurfi nema skammvinna áreynslu, eins og að ganga upp stiga, til að draga úr líkunum á ótímabærum dauða.

„Ef þú hefur val á milli þess að ganga upp stigann eða nota lyftuna, þá skaltu velja stigann því það er gott fyrir hjartað,“ hefur Metro eftir Dr. Sophie Paddock.

Rannsóknir benda til að regluleg hreyfing geti dregið úr líkunum á ótímabærum dauða og hjartasjúkdómum.

Í nýju rannsókninni var byggt á gögnum úr níu eldri rannsóknum sem náðu til rúmlega 480.000 manns á aldrinum 35 til 84 ára. Bæði heilbrigt fólk og hjartasjúklingar voru teknir með í greininguna. 53% þeirra voru konur.

Auk þess að draga úr líkunum á ótímabærum dauða reyndist stigaþramm draga úr líkunum á því að fólk fengi hjartasjúkdóma.

Paddock sagði að út frá niðurstöðunum vilji rannsakendurnir hvetja fólk til að gera stigaþramm að hluta af daglegu lífi. „Rannsóknin okkar bendir til að þeim mun oftar sem gengið er upp stiga, þeim mun meiri áhrif en það þarf að rannsaka þetta betur. En, hvort sem það er heima eða annars staðar, notið stigana,“ sagði hún.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Frygðarstunur trufluðu fréttamannafundinn – Myndband

Frygðarstunur trufluðu fréttamannafundinn – Myndband
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fjársjóðsleitin gekk fullkomlega upp – Síðan reið áfallið yfir leitarmenn

Fjársjóðsleitin gekk fullkomlega upp – Síðan reið áfallið yfir leitarmenn
Pressan
Fyrir 5 dögum

Voyager 1 er tæplega fimmtugt en kemur okkur enn á óvart með upplýsingum frá jaðri sólkerfisins

Voyager 1 er tæplega fimmtugt en kemur okkur enn á óvart með upplýsingum frá jaðri sólkerfisins
Pressan
Fyrir 5 dögum

Talíbanar vilja fá fleiri ferðamenn til landsins

Talíbanar vilja fá fleiri ferðamenn til landsins
Pressan
Fyrir 5 dögum

Fimm börn dáin eftir að hafa fengið kíghósta

Fimm börn dáin eftir að hafa fengið kíghósta
Pressan
Fyrir 5 dögum

Endurgerðu andlit Neanderdalskonu

Endurgerðu andlit Neanderdalskonu