fbpx
Fimmtudagur 16.maí 2024
Pressan

Játar að hafa skotið 14 mánaða hundinn sinn

Pressan
Mánudaginn 29. apríl 2024 08:36

Kristi Noem með Donald Trump, forsetaefni Repúblikana.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristi Noem, ríkisstjóri Suður-Dakóta og vonarstjarna Repúblikana, hefur mátt þola talsverða gagnrýni að undanförnu vegna játningar í bók sinni, No Going Back: The Truth on What‘s Wrong with Politics
and 
How We Move America Forward.

Í bókinni segist Kristi hafa skotið hundinn sinn, hinn fjórtán mánaða gamla Cricket, vegna árásargirni hans. Kristi hugðist nota Cricket sem veiðihund á búgarði sínum en sagði hann hafa verið óalandi. Eftir að hann reyndi ítrekað að bíta fólk hafi hún ákveðið að nú væri komið gott.

Eftir að fjallað var um þennan kafla bókarinnar í bandarískum fjölmiðlum um helgina fékk Kristi yfir sig holskeflu af gagnrýni. Á samfélagsmiðlinum X, áður Twitter, naut myllumerkið #puppykiller talsverðra vinsælda um helgina í tengslum við málið.

Colleen O‘Brien, fjölmiðlafulltrúi PETA-dýraverndunarsamtakanna, gagnrýnir Noem fyrir að hafa ætlað sér að þjálfa Cricket til að ráðast á önnur dýr en síðan refsað honum grimmilega fyrir að ráðast á fólk. Hún hefði mögulega getað lagt meiri áherslu á þjálfun hundsins eða reynt að koma honum fyrir hjá einhverjum sem hafði tíma og kunnáttu til að eiga við hann.

Kristi varði þessa ákvörðun sína á samfélagsmiðlinum Truth Social um helgina. Sagðist hún hafa sýnt af sér ábyrga hegðun þar sem hundurinn hefði ráðist að fólki.

„Eins og ég útskýrði í bókinni var þetta ekki auðveld ákvörðun. En það er stundum þannig að auðvelda leiðin er ekki sú rétta.“

Kristi Noem hefur verið ríkisstjóri Suður-Dakóta frá árinu 2018. Nafn hennar hefur komið upp í tengslum við umræðuna um varaforsetaefni Donalds Trumps nái hann kjöri í forsetakosningunum síðar á þessu ári.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Fólk áttar sig ekki á þessu – „Synir okkar eru bræður, frændur og tvíburar“

Fólk áttar sig ekki á þessu – „Synir okkar eru bræður, frændur og tvíburar“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fyrir einni milljón ára blönduðust tvær plöntur óvart og við njótum góðs af því

Fyrir einni milljón ára blönduðust tvær plöntur óvart og við njótum góðs af því
Pressan
Fyrir 4 dögum

Líkami þinn lyktar þegar hann er stressaður og hundar finna þessa lykt

Líkami þinn lyktar þegar hann er stressaður og hundar finna þessa lykt
Pressan
Fyrir 4 dögum

Heit umræða – Hvort þurfa konur eða karlar að sofa lengur?

Heit umræða – Hvort þurfa konur eða karlar að sofa lengur?
Pressan
Fyrir 5 dögum

Nokkurra vikna stúlka á gjörgæslu með kíghósta – „Þetta hefur verið algjör martröð“

Nokkurra vikna stúlka á gjörgæslu með kíghósta – „Þetta hefur verið algjör martröð“
Pressan
Fyrir 5 dögum

Umdeilt viðtal við hina raunverulegu Mörthu kallað það siðlausasta fyrr og síðar – Meintur eltihrellir fær að segja sína hlið

Umdeilt viðtal við hina raunverulegu Mörthu kallað það siðlausasta fyrr og síðar – Meintur eltihrellir fær að segja sína hlið