fbpx
Mánudagur 20.maí 2024
Pressan

Dóttirin heyrði í „skrímslum“ í veggnum – Það sem leyndist þar minnti á atriði úr hryllingsmynd

Pressan
Þriðjudaginn 30. apríl 2024 12:03

Hitamyndavél sýndi að ekki var allt með felldu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Myndband sem kona ein birti á TikTok hefur vakið gríðarlega athygli undanfarna daga.

Í myndbandinu segir konan, Ashley, að dóttir hennar hafi talað um dularfullt hljóð úr einum vegg á heimili þeirra fyrir skemmstu. Sagði hún að hljóðið minnti hana einna helst á „skrímsli“ í veggnum.

Til að gera langa sögu stutta kom í ljós að í góðu yfirlæti inni í veggnum voru hvorki fleiri né færri en 50 þúsund býflugur. Hátt í tíu milljónir notenda TikTok hafa horft á myndband Ashley sem minnir einna helst á atriði úr hryllingsmyndinni Candyman.

Meindýraeyðir var kallaður á vettvang og fyrsta daginn fjarlægði hann 20 þúsund býflugur og 45 kíló af hunangi og vaxi meðal annars. Næstu tvo daga þar á eftir tókst honum að fjarlægja um 30 þúsund flugur.

Ashley segist ekki vita hvernig flugurnar komust á bak við vegginn en ljóst má vera að þær hafi athafnað sig þar tiltölulega áhyggjulausar um margra mánaða skeið.

Ashley segir að tryggingafélagið hennar hafi neitað að greiða fyrir það tjón sem varð á húsinu þar sem um „utanaðkomandi atburð“ var að ræða.

Eins og áður segir hefur myndband Ashley vakið mikla athygli og sitt sýnist hverjum. „Í hreinskilni sagt myndi ég frekar vilja hafa skrímsli inni í veggnum hjá mér en 50 þúsund býflugur,“ sagði einn í athugasemd við myndbandið.

@classashley What nighthmares are made of #bees #toddlersoftiktok #toddlers ♬ Oh No – Kreepa

Hér má sjá myndböndin sem Ashley birti á TikTok.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 4 dögum

Mikil sorg eftir dauða 10 ára drengs sem varð fyrir skelfilegu einelti

Mikil sorg eftir dauða 10 ára drengs sem varð fyrir skelfilegu einelti
Pressan
Fyrir 4 dögum

Svívirðileg hegðun kvöld eitt í fyrra mun kosta hann áratugi í fangelsi

Svívirðileg hegðun kvöld eitt í fyrra mun kosta hann áratugi í fangelsi
Pressan
Fyrir 1 viku

Lést tveimur mánuðum eftir að erfðabreytt svínsnýra var grætt í hann

Lést tveimur mánuðum eftir að erfðabreytt svínsnýra var grætt í hann
Pressan
Fyrir 1 viku

Fimmtán ára drengur lenti í skelfilegu slysi – Fékk öflugt raflost í liminn

Fimmtán ára drengur lenti í skelfilegu slysi – Fékk öflugt raflost í liminn