Þetta er niðurstaða nýrrar rannsóknar sem stóð yfir í um áratug. The Guardian skýrir frá þessu.
Minnið er ein af grunnstoðum okkar í hinu daglega lífi en eftir því sem aldurinn færist yfir okkur versnar það og það hefur áhrif á lífsgæði og afkastagetu okkar og eykur líkurnar á að við þróum elliglöp með okkur.
Niðurstöður fyrri rannsóknar hafa ekki verið nægilega traustar til að hægt hafi verið að meta áhrif heilbrigðra lífshátta á minnistap. En nýja rannsóknin bendir til að það að blanda mörgum heilbrigðum lífsháttum, þeim mun fleiri, þeim mun betra, tengist vægari hrörnun minnis.
„Blanda jákvæðs og heilbrigðs atferlis tengist hægari þróun minnistaps hjá eldra fólki sem er með eðlilega vitsmuni,“ segja vísindamennirnir, sem stóðu að rannsókninni, í grein í British Medical Journal.
Þeir rannsökuðu 29.000 manns, eldri en 60 ára, sem voru með eðlilega vitsmunastarfsemi. Rannsóknin hófst 2009 og var minni þátttakendanna þá rannsakað með ýmsum prófum og einnig var rannsakað hvort fólk bæri APOE genið, sem er sterkasti erfðafræðilegi þátturinn fyrir að þróa Alzheimers. Síðan var fylgst með fólkinu næstu 10 árin og reglulegt mat lagt á það.