fbpx
Þriðjudagur 14.maí 2024
Pressan

Óvænt uppgötvun um íbúprófen – Má ekki nota samhliða blóðþrýstingslyfjum

Kristján Kristjánsson
Laugardaginn 21. maí 2022 16:30

Ópíóíðar eru stórhættulegir. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það virðist kannski ekki hættulegt að taka eina verkjatöflu en það er betra að hugsa sig um ef um verkjalyf, sem inniheldur íbúprófen, er að ræða.

Dagbladet segir að niðurstöður nýrrar rannsóknar sýni að það geti verið aukaverkanir af verkjalyfjum, sem innihalda íbúprófen, eins og öllum öðrum lyfjum.

Þessar aukaverkanir geta verið sérstaklega hættulegar ef blóðþrýstingslyf eru notuð.

Í rannsókninni er varað við að taka verkjalyf, sem innihalda íbúprófen, samhliða blóðþrýstingslyfjum. Nánar tiltekið er það blanda af Furosemid, sem er vatnslosandi og blóðþrýstingslækkandi lyf sem hefur áhrif á RAS-kerfið og íbúprófen sem átt er við.

Ef þessi lyf eru notuð samtímis er hætta á nýrnaskemmdum og í versta tilfelli dauða. Þetta kemur fram í niðurstöðum rannsóknarinnar sem var gerð af vísindamönnum við Waterloo háskólann í Kanada á vegum kanadísku rannsóknarstofnunarinnar Canada 150 Research Chair sem er fjármögnuð af ríkinu.

Dagbladet hefur eftir Morten Finckenhagen, yfirlækni hjá norsku lyfjastofnuninni, að niðurstaða rannsóknarinnar sé að litlar líkur séu á að ungt og heilbrigt  fólk fái nýrnavandamál með því að taka þessi lyf samtímis en venjulega sé það eldra fólk sem noti þau. „Ef það er til dæmis 82 ára amma getur það haft banvænar afleiðingar. Eldra fólk er mjög oft með skerta nýrnastarfsemi og á að halda sig frá íbúprófeni og líkum lyfjum,“ sagði hann.

Hann hvetur fólk til að nota frekar parasetamól við verkjum og ef fólk er orðið 65 ára eða eldra á það að forðast að nota íbúprófenlyf að hans sögn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Stórtíðindi af bóluefnum – Nýtt bóluefni veitir vernd gegn kórónuveirum sem eru ekki enn komnar fram á sjónarsviðið

Stórtíðindi af bóluefnum – Nýtt bóluefni veitir vernd gegn kórónuveirum sem eru ekki enn komnar fram á sjónarsviðið
Pressan
Í gær

Hæfileikaríkur miðill blekkti bæjarstjórann upp úr skónum

Hæfileikaríkur miðill blekkti bæjarstjórann upp úr skónum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Voyager 1 er tæplega fimmtugt en kemur okkur enn á óvart með upplýsingum frá jaðri sólkerfisins

Voyager 1 er tæplega fimmtugt en kemur okkur enn á óvart með upplýsingum frá jaðri sólkerfisins
Pressan
Fyrir 2 dögum

Talíbanar vilja fá fleiri ferðamenn til landsins

Talíbanar vilja fá fleiri ferðamenn til landsins
Pressan
Fyrir 4 dögum

Lögreglan kom að 10-15 mönnum sem stóðu og fróuðu sér

Lögreglan kom að 10-15 mönnum sem stóðu og fróuðu sér
Pressan
Fyrir 4 dögum

Tvær nýjar myndir um Hringadróttinssögu væntanlegar

Tvær nýjar myndir um Hringadróttinssögu væntanlegar