Matthias Schertz, dómari, sagði við dómsuppkvaðninguna að maðurinn hefði myrt 43 ára karlmann til að láta draum sinn um mannát rætast.
Saksóknari sagði að maðurinn hefði komist í samband við fórnarlambið í gegnum stefnumótaapp. Hann sannfærði viðkomandi um að koma í heimsókn til sín. Hann deyfði manninn síðan og skar hann á háls. Því næst skar hann kynfærin af honum og borðaði þau. Restina af líkinu skar hann í hluta og dreifði um Pankowhverfið í Berlín.
Lögreglan komst á slóð mannsins þegar mannabein fundust í garði í hverfinu. Þau reyndust vera úr fórnarlambinu en tilkynnt hafði verið um hvarf hans. Lögreglan gat síðan staðfest að hann hefði orðið fórnarlamb kennarans sem hefði myrt hann og borðað að hluta.
Út frá símagögnum fann lögreglan heimil hins dæmda en þar fannst blóð úr fórnarlambinu og verkfæri sem hinn dæmdi notaði við hryllingsverkið.
Fyrir dómi sagði maðurinn að fórnarlambið hefði látist af eðlilegum orsökum og að hann hefði hlutað hann í sundur til að leyna því að hann væri samkynhneigður. Þessu trúði dómarinn ekki og fann hann sekan og dæmdi í ævilangt fangelsi.