Sundsprettur í sjónum endaði á hræðilegan hátt fyrir hinn 51 árs gamla Marcelo Rocha Santos. Hann ætlaði sér út í sjó til þess að pissa, en varð fyrir árás hákarls og lét lífið. Atvikið átti sér stað á laugardag við strönd á ferðamannastað í Brasilíu. New York Post greinir frá.
„Það var mikið blóð í vatninu,“ sagði sjónarvottur eftir þessa óhugnanlegu árás. Marcelo er sagður hafa verið drukkinn þegar honum varð mál að pissa. Hann og félagi hans fóru út á sjó, en sjórinn var gruggugur og því erfitt að sjá eitthvað í honum.
Félagi hans hefur sagt við fjölmiðla: „Það var ekkert klósett á ströndinni. Þannig við fórum í sjóinn til að pissa. Ég var við hliðina á honum.“
Fólk á ströndinni hafði verið varað við því að fara í sjóinn, og strandvörður hafði skipað mönnunum að koma aftur á ströndina þegar sjórinn þeim upp að mitti.
Þá réðist hákarlinn á Marcelo, og beit hann í höndina og fótinn. Strandverðinum tókst ekki að bjarga manninum, en nokkrum félögum hans tókst að draga hann á ströndina, en þar féll hann niður kylliflatur á meðan fólk horfði á í skelfingu. Einn sjónarvottur tók myndband upp af Marcelo Rocha Santos liggjandi í sandinum.
Manninum var komið á sjúkrahús og þar var hann úrskurðaður látinn. Félaginn slapp ómeiddur, en bara þeir tveir höfðu verið í sjónum.
Ekki er víst hverskonar hákarl réðst á Marcelo, en talið er að það hafi annað hvort verið tígris- eða nautháfur. Slysið átti sér stað nálægt svæði sem er þekkt fyrir hákarlaárásir, en vitað er um allavega tólf slíkar. Þá eru hákarlaárásir sérstaklega algengar á þessum tíma árs í Brasilíu.