fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Pressan

Hófu loftárásir á Gaza í gærkvöldi

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 16. júní 2021 06:03

Frá Gasa.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ísraelsher hóf í gærkvöldi loftárásir á Gaza og bæinn Khan Younis. Segja talsmenn hersins að árásunum sé beint að hernaðarmannvirkjum sem Hamas ráða yfir. Árásirnar eru svar hersins við sprengjum, sem herskáir Palestínumenn hafa sent yfir landamærin til suðurhluta Ísraels, með blöðrum.

Þessar blöðrusprengjur urðu að sögn hersins til þess að tuttugu eldar kviknuðu á ökrum nærri Gaza. Í tilkynningu frá hernum kemur fram að hann sé „undir allar sviðsmyndir búinn, þar á meðal átök í ljósi áframhaldandi hryðjuverkaárása frá Gaza“.

Talsmaður Hamas staðfesti að Ísraelsher hefði gert árásir og sagði að Palestínumenn muni áfram sýna af sér „hugrekki og mótstöðu og verja réttindi sín og heilaga staði í Jerúsalem“.

Ekki hafa borist upplýsingar um mannfall eða hvort einhver hafi særst í árásum Ísraelsmanna.

Vopnahlé hefur verið í gildi á svæðinu síðan 21. maí en þá höfðu hörð átök staðið yfir í 11 daga. 260 Palestínumenn létu lífið í þeim og 13 Ísraelsmenn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 18 klukkutímum

„Bölvunin“ sem fylgdi Jessicu úr brunninum — sjálfsvíg, skilnaður og heimilisofbeldi

„Bölvunin“ sem fylgdi Jessicu úr brunninum — sjálfsvíg, skilnaður og heimilisofbeldi
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Mesta manntal sögunnar er hafið – Tekur eitt ár

Mesta manntal sögunnar er hafið – Tekur eitt ár
Pressan
Í gær

Vísindamenn gerðu einstaka uppgötvun í helli undir kastala

Vísindamenn gerðu einstaka uppgötvun í helli undir kastala
Pressan
Í gær

Ný gögn varpa ljósi á harmleikinn: Hvað gerðist dagana áður?

Ný gögn varpa ljósi á harmleikinn: Hvað gerðist dagana áður?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Flugfarþegar í áfalli yfir „furðulegri“ sætaskipan barna – „Hvað í ósköpunum?“

Flugfarþegar í áfalli yfir „furðulegri“ sætaskipan barna – „Hvað í ósköpunum?“
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Ég vildi óska þess að við hefðum aldrei opnað búðirnar þetta sumar“

„Ég vildi óska þess að við hefðum aldrei opnað búðirnar þetta sumar“