fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
Pressan

Segir að framhjáhald hafi orðið Bill Gates að falli

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 17. maí 2021 06:00

Bill og Melinda Gates stofnuðu sjóðinn. Mynd:EPA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar Bill Gates, stofnandi Microsoft, tilkynnti á síðasta ári að hann ætlaði að víkja úr stjórn félagsins til að helga sig mannúðarmálum var það kannski ekki alveg allur sannleikurinn. Ástæðan fyrir því að hann vék úr stjórninni var að rannsókn stóð yfir innan fyrirtækisins á meintu ástarsambandi Gates við starfskonu fyrirtækisins en það stóð að sögn yfir í kringum aldamótin.

The Wall Street Journal skýrir frá þessu og hefur eftir ónafngreindum heimildarmönnum sem þekkja til málsins.

Talskonar Gates sagði í samtali við The Wall Street Journal að Gates hafi átt í ástarsambandi fyrir 20 árum en því hafi lokið í góðu. Hún vísaði því á bug að ákvörðun Gates um að víkja úr stjórninni tengist því máli nokkuð.

Blaðið segir að sumarið 2019 hafi stjórn Microsoft fengið lögfræðistofu til að rannsaka hvort Gates hefði átt í ástarsambandi við starfskonuna. Það var gert í kjölfar þess að konan, verkfræðingur, sendi stjórninni bréf þar sem hún staðhæfði að hún hefði árum saman átt í ástarsambandi við Gates. Blaðið segir að Gates hafi sagt sig úr stjórninni áður en rannsókninni lauk og því hafði stjórnin ekki tekið ákvörðun í málinu.

Fyrr í mánuðinum var skýrt frá því að Bill og Melinda Gates væru að skilja eftir 27 ára hjónaband. Þau ætla þó að sögn að halda áfram samstarfi sínu í Bill & Melinda Gates Foundation sem eru mannúðarsamtök sem starfa að málum víða um heim.

The Wall Street Journal skýrði frá málinu í gær og New York Times fjallaði einnig um Gates í gær og sagði að hann hafi árum saman haft orð á sér fyrir „vafasama hegðun í tengslum við vinnuna“ og að hann hafi oft „reynt við“ starfsfólk hjá Microsoft og hjá Bill & Melinda Gates Foundation.

New York Times segir einnig að Melinda hafi verið ósátt við hvernig eiginmaður hennar tók á kvörtunum um kynferðislega áreitni yfirmanns hjá Microsoft. Því máli hafi lokið með leynilegu samkomulagi í staðinn fyrir rannsókn utanaðkomandi aðila. Hún var að sögn einnig óánægð með að eiginmaður hennar hafði umgengist barnaníðinginn Jeffrey Epstein. Kunningsskapur þeirra hófst að sögn 2011 en þremur árum áður hafði Epstein játað að hafa greitt barnungum stúlkum fyrir kynlíf.

Ekki er vitað hvort Melinda vissi um framhjáhald eiginmanns síns og hvort það mál hafi átt þátt í skilnaði þeirra.

Talskona Gates vísaði frétt New York Times á bug og gagnrýndi blaðið fyrir að vitna í ónafngreinda heimildarmenn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Hvað verður um heilann úr OJ Simpson?

Hvað verður um heilann úr OJ Simpson?
Pressan
Í gær

Ráðagóðir menn björguðu sér með aðstoð pálmablaða

Ráðagóðir menn björguðu sér með aðstoð pálmablaða
Pressan
Í gær

Í þessu landi seljast fleiri fullorðinsbleiur en barnableiur

Í þessu landi seljast fleiri fullorðinsbleiur en barnableiur
Pressan
Í gær

Ný rannsókn bendir til hugsanlegrar lækningar á HIV

Ný rannsókn bendir til hugsanlegrar lækningar á HIV
Pressan
Fyrir 3 dögum

Búrhvalir nota risastórar kúkasprengjur til að bjarga sér frá árásum háhyrninga

Búrhvalir nota risastórar kúkasprengjur til að bjarga sér frá árásum háhyrninga
Pressan
Fyrir 3 dögum

Gleymd gögn frá Appologeimferðunum varpa ljósi á áður óþekkta atburði á tunglinu

Gleymd gögn frá Appologeimferðunum varpa ljósi á áður óþekkta atburði á tunglinu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hafði setið í fangelsi í 21 ár – Sá endursýndan sjónvarpsþátt fyrir tilviljun og gat sannað sakleysi sitt

Hafði setið í fangelsi í 21 ár – Sá endursýndan sjónvarpsþátt fyrir tilviljun og gat sannað sakleysi sitt
Pressan
Fyrir 4 dögum

Ofbeldisverk eru mikið vandamál í frönskum skólum

Ofbeldisverk eru mikið vandamál í frönskum skólum