fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Pressan

Íbúð til leigu á 120 krónur á mánuði!

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 30. nóvember 2021 06:40

Svona lítur íbúðin út. Mynd:IKEA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Um 120 krónur á mánuði fyrir að leigja litla íbúð. Það hljómar auðvitað ótrúlega en er engu að síður satt. Og ekki nóg með það því íbúðin er í Tókýó, höfuðborg Japan, sem er ein dýrasta borg heims.

En hún er ekki stór, aðeins 10 fermetrar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá IKEA sem á íbúðina og ætlar að leigja hana út.

Um eins herbergis íbúð er að ræða og er hún fullbúin húsgögnum frá IKEA, annað væri nú kjánalegt. Áhugasamir hafa frest til 3. desember til að senda inn umsókn um að fá íbúðina á leigu. Leigutakinn þarf að vera eldri en tuttugu ára og auðvitað búsettur í Tókýó.

En sá galli er á þessu að verðandi leigjandi getur ekki flutt inn fyrr en 15. janúar 2023. Leigjandinn þarf sjálfur að greiða fyrir vatn og rafmagn.

10 fermetrar eru auðvitað ekki margir fermetrar til að búa í en á heimasíðu IKEA er útskýrt hvernig það er hægt. „Allt snýst þetta um að nýta rýmið lóðrétt. Þegar horft er á rýmið í þrívídd opnast fleiri möguleikar.“

Tókýó er ein þéttbýlasta borg heims og þar er vaxandi áhugi á „öríbúðum“ á borð við þessa.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Móðir ákærð – Hótaði barnsföður sínum að birta klámfengið efni

Móðir ákærð – Hótaði barnsföður sínum að birta klámfengið efni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Norður-Kórea er betur undirbúin undir stríð en nokkru sinni áður

Norður-Kórea er betur undirbúin undir stríð en nokkru sinni áður
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fundu bát sem var fullur af rotnandi líkum

Fundu bát sem var fullur af rotnandi líkum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Kannabis er orðið að milljarðaiðnaði í Bandaríkjunum – Hvaða áhrif hefur efnið á heilsu fólks?

Kannabis er orðið að milljarðaiðnaði í Bandaríkjunum – Hvaða áhrif hefur efnið á heilsu fólks?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Kynlífspartý, fíkniefni, Viagra og morð – Kaþólska kirkjan tengist vafasömum málum

Kynlífspartý, fíkniefni, Viagra og morð – Kaþólska kirkjan tengist vafasömum málum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Lögreglukonan sem réðst ein til atlögu gegn stungumanninum í Sydney – „Ég var bara að vinna mína vinnu“ – Nýjar upplýsingar um morðingjann vekja óhug

Lögreglukonan sem réðst ein til atlögu gegn stungumanninum í Sydney – „Ég var bara að vinna mína vinnu“ – Nýjar upplýsingar um morðingjann vekja óhug