fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Pressan

Elísabet II sagði pent nei takk – Telur sig ekki uppfylla skilyrðin fyrir að vera kjörin öldungur ársins

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 20. október 2021 07:03

Elísabet II.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Takk, en nei takk var svar Elísabetar II Bretadrottningar þegar hún afþakkaði, að sjálfsögðu kurteislega, að vera kjörin öldungur ársins (Oldie of the Year) af breska tímaritinu The Oldie. Í svari drottningarinnar til blaðsins kemur fram að hún telji sig ekki uppfylla skilyrðin fyrir kjörinu.

Blaðið birti í gær svar drottningarinnar við tillögu þess um að hún yrði kjörinn öldungur ársins en meðal fyrri sigurvegara eru John Major, fyrrum forsætisráðherra Bretlands, Olivia de Havilland, leikkona, og listamaðurinn David Hockney.

„Hennar hátign er sannfærð um að maður sé eins gamall og manni finnst maður vera. Af þeim sökum telur drottningin ekki að hún uppfylli nauðsynleg skilyrði fyrir að geta veitt verðlaununum viðtöku og vonast til að þið finnið verðugri vinningshafa,“ segir í bréfi sem ritari drottningarinnar sendi blaðinu.

Eiginmaður Elísabetar, Philip prins, lést fyrr á árinu 99 ára að aldri. Sjálf er hún orðin 95 ára en lætur engan bilbug á sér finna og sinnir embættisskyldum sínum af krafti.

Titillinn „Oldie of the Year“ er árlega veittur öldruðu fólki sem þykir hafa skarað fram úr og lagt mikið af mörkum opinberlega. Philip prins fékk þennan titil 2011 þegar hann var níræður.

Tímaritið The Oldie hóf göngu sína 1992 en það er gamansamt mánaðarrit ætlað eldra fólki. Það fjallar ekki um hefðbundin málefni eldra fólks heldur er því ætlað að vera mótsvar við öðrum fjölmiðlum sem eru „helteknir af æsku og frægu fólki“ eins og segir á heimasíðu tímaritsins.

Elísabet hefur verið drottning síðan 1992 og getur því fagnað 70 ára valdaafmæli í febrúar á næsta ári.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Tæplega helmingur kínverskra stórborga er að sökkva

Tæplega helmingur kínverskra stórborga er að sökkva
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lögreglan skýrir frá óhugnanlegum upplýsingum varðandi morð

Lögreglan skýrir frá óhugnanlegum upplýsingum varðandi morð
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sanna sagan á bak við Netflixþættina Baby Reindeer sem hafa slegið í gegn – Hvað varð um Richard og Mörthu og hver er hin raunverulega Martha?

Sanna sagan á bak við Netflixþættina Baby Reindeer sem hafa slegið í gegn – Hvað varð um Richard og Mörthu og hver er hin raunverulega Martha?
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
Pressan
Fyrir 4 dögum

Dæmd í fangelsi – Sendi stjörnunni 8.000 bréf á einum mánuði

Dæmd í fangelsi – Sendi stjörnunni 8.000 bréf á einum mánuði
Pressan
Fyrir 4 dögum

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig