fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Pressan

Ný uppgötvun um bakhlið tunglsins

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 26. júní 2020 22:30

Tunglið. Mynd:NASA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það var ekki fyrr en 1959 sem við sáum í fyrsta sinn hvernig bakhlið tunglsins lítur út. Í kjölfarið áttuðu vísindamenn sig á að það er mikill munur á bakhliðinni og framhliðinni. En hvernig stendur á því? Nú telja vísindamenn sig hafa fundið skýringu á þessu.

Science Alert skýrir frá þessu. Eins og kunnugt er þá er tunglið í læstri stöðu, það er að segja það er alltaf sama hliðin sem snýr að jörðinni. Hún er þakin stórum, svörtum blettum sem nefnast lunar maria (tunglhöf). Þessir blettir eru úr basalti sem á rætur að rekja til eldvirkni á tunglinu fyrir margt löngu.

En bakhliðin er allt öðruvísi, skorpan er þykkari og úr öðrum frumefnum en framhliðin. Auk þess er yfirborð bakhliðarinnar fölara og með færri basalt bletti.

Á framhliðinni er það sérstaklega svæði sem nefnist Oceanus Procellarum sem hefur dregið að sér athygli vísindamanna því það er úr blöndu af kalíum og fosfór. Vísindamenn telja að svæðið hafi verið geislavirkt og að blanda af kalíum, úrani og þóríum hafi haldið svæðinu heitu árum saman. Þetta getur hugsanlegs skýrt af hverju tunglið er skakkt.

Efnasamsetning framhliðarinnar gerði, að mati vísindamannanna, að verkum að bráðnunarpunktur steina var lægri en á bakhliðinni og því bráðnuðu tunglsteinar 2-13 sinnum hraðar þar en á bakhliðinni. Var þá ekki tekið tillit til geislavirkra efna. Telja vísindamennirnir að samspil þessarar efnasamsetningar og geislavirkni hafi valdið meiri eldvirkni á framhliðinni sem orsakaði alla þessa dökku bletti sem við sjáum þar í dag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Gríðarstórt eldfjall á Mars var fyrir „allra augum“ og gæti geymt ummerki um líf

Gríðarstórt eldfjall á Mars var fyrir „allra augum“ og gæti geymt ummerki um líf
Pressan
Fyrir 2 dögum

Orrustan um Bretland

Orrustan um Bretland
Pressan
Fyrir 3 dögum

Vaxandi áhyggjur af ofureldfjalli – Er það að vakna til lífsins?

Vaxandi áhyggjur af ofureldfjalli – Er það að vakna til lífsins?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Nokkrar mýtur um kvef, hálsbólgu og flensu

Nokkrar mýtur um kvef, hálsbólgu og flensu