fbpx
Sunnudagur 19.maí 2024
Pressan

Warren Buffet hvetur til meiri fjárhagsaðstoðar – „Þetta er efnahagslegt stríð“

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 16. desember 2020 17:05

Warren Buffett.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríski fjárfestirinn Warren Buffet hvetur bandarísk stjórnvöld til að framlengja fjárhagslega hjálparpakka til stuðnings litlum fyrirtækjum í landinu en þau berjast mörg hver fyrir lífi sínu þessa dagana vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar.

Buffett sagði fyrr á árinu að hann ætlaði ekki að veita nein viðtöl fyrr en fjárfestingafélag hans, Berkshire Hathaway, heldur aðalfund næsta vor. En honum finnst greinilega að málefnið sé svo alvarlegt að hann ræddi það við CNBC. „Þetta er efnahagslegt stríð,“ sagði hann meðal annars.

Stjórnmálamenn hafa ekki náð saman um nýja hjálparpakka fyrir lítil fyrirtæki í landinu og eru þau því í mikilli óvissu.

Hann hvatti þingmenn til að lengja þær stuðningsaðgerðir sem var ýtt úr vör í vor. „Mér finnst að landið skuldi milljónum eigenda lítilla fyrirtækja það. Framlengið þetta og komið okkur í gegnum þetta,“ sagði hann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Hans var saknað í 26 ár: Fannst á lífi 200 metrum frá heimili sínu

Hans var saknað í 26 ár: Fannst á lífi 200 metrum frá heimili sínu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Meintur raðnauðgari handtekinn eftir 24 ár á flótta

Meintur raðnauðgari handtekinn eftir 24 ár á flótta
Pressan
Fyrir 6 dögum

Fólk áttar sig ekki á þessu – „Synir okkar eru bræður, frændur og tvíburar“

Fólk áttar sig ekki á þessu – „Synir okkar eru bræður, frændur og tvíburar“
Pressan
Fyrir 6 dögum

Fyrir einni milljón ára blönduðust tvær plöntur óvart og við njótum góðs af því

Fyrir einni milljón ára blönduðust tvær plöntur óvart og við njótum góðs af því