fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Pressan

Þýsk yfirvöld hafa misst stjórn á kórónuveirufaraldrinum – Víðtækar lokanir taka gildi á morgun

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 15. desember 2020 06:55

Kórónuveira. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kórónuveiran dreifist nú svo hratt í Þýskalandi að Peter Altmaier, efnahags- og orkumálaráðherra, telur að faraldurinn sé nú stjórnlaus. Þjóðverjar eru hvattir til að sleppa jólagjafainnkaupum og miðnæturmessu um jólin. Á morgun ganga víðtækar lokanir í gildi.

„Ég vona og óska mér að fólk kaupi bara það sem það hefur virkilega þörf fyrir, eins og nauðsynjavörur. Þeim mun fyrr sem við náum stjórn á þessari veiru, þeim mun betra fyrir alla,“ sagði Altmaier að sögn Focus og hvatti fólk til að láta staðar numið við jólagjafainnkaupin nú.

En örtröð var í mörgum verslunum í gær og verður væntanlega í dag en margir vöknuðu greinilega upp við þann vonda draum að þeir ættu eftir að kaupa jólagjafir og ákváðu að drífa í því áður en verslanir loka á morgun. Þetta hefur leitt til mannmergðar víða.

Á sunnudaginn náðu Angela Merkel, kanslari, og stjórnvöld í öllum 16 sambandsríkjunum samkomulagi um að flestum verslunum í landinu verði gert að loka frá og með morgundeginum. Það sama gildir einnig um skóla og leikskóla. Í upphafi var rætt um að þetta muni gilda til 10. janúar en í gær sagði talsmaður Merkel líklegt að lokunin muni vara töluvert lengur en það. Einnig er bannað að drekka áfengi á almannafæri og að hámarki má hitta fimm manns frá öðrum heimilum. Þetta gildir þó ekki 24. til 26. desember.

Yfirvöld vonast til að geta náð tökum á faraldrinum með þessu en önnur bylgja faraldursins, sem gengur yfir núna, getur lagt heilbrigðiskerfi landsins á hliðina ef allt fer á versta veg.

Verslanir hafa varað stjórnvöld við að flestar verslanir í miðbæjum og miðborgum muni ekki lifa þessa lokun af því hún taki af þeim jólaverslunina sem standi undir stórum hluta af veltu ársins. Altmaier segir líklegt að líklega muni efnahagslífið ekki stöðvast algjörlega í kjölfar aðgerðanna en það sé háð því að verslanir fái nauðsynlegan fjárhagslegan stuðning frá yfirvöldum.

Smitum hefur fjölgað hratt í Þýskalandi að undanförnu og eru rúmlega 20.000 á dag. Í gær var tilkynnt um 188 dauðsföll en talan gæti verið hærri því venjulega eru ekki öll sambandsríkin búin að tilkynna fjölda dauðsfalla yfir helgar á mánudögum. 1,3 milljónir landsmanna hafa greinst með veiruna og rúmlega 22.000 hafa látist.

Sjúkrahús um allt land hafa síðustu daga endurtekið aðvaranir um að þau séu komin að þolmörkum hvað varðar fjölda COVID-19-sjúklinga. Í gær lágu 4.552 COVID-19-sjúklingar á gjörgæsludeildum landsins. 52% þeirra voru í öndunarvélum.

Frá því í byrjun nóvember hafa ákveðnar lokanir verið í gildi, til dæmis mega veitingastaðir ekki hafa gesti innandyra, kvikmyndahús eru lokuð sem og leikhús og tónleikum hefur verið aflýst. Sum sambandsríki hafa gripið til harðari aðgerða, þar á meðal Baden-Württemberg sem hefur tilkynnt að útgöngubann taki gildi í næstu viku á ákveðnum tímum sólarhringsins. Í Sachsen er einnig verið að undirbúa að setja útgöngubann á milli klukkan 22 og 6.

Stjórnmálamenn hvetja kristið fólk til að halda sig heima og horfa á jólamessur á netinu í stað þess að fara í kirkju til að forðast enn frekari smit.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
Pressan
Í gær

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig
FréttirPressan
Fyrir 3 dögum

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?