fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Pressan

Fyrstu kappræður Trump og Biden eru í kvöld – Skattamálin verða væntanlega ofarlega á baugi

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 29. september 2020 07:55

Biden er kominn í kosningaham gegn Trump

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í kvöld mætast Donald Trump og Joe Biden í sjónvarpskappræðum fyrir forsetakosningarnar sem fara fram þann 3. nóvember. Skattamál Trump verða væntanlega ofarlega á baugi í kjölfar umfjöllunar New York Times um skattamál hans.

Trump mun líklega mæta til leiks í ákveðinni vörn vegna afhjúpana New York Times á skattamálum hans en óhætt er að segja að þær séu Trump ekki til framdráttar. Í þeim kemur fram að Trump hafi komið sér hjá því að greiða skatta til alríkisins árum saman. Framboð Trump hafði vonast til að kappræðurnar í kvöld myndu gagnast honum til að komast í betri stöðu í lykilríkjum þar sem hann á á brattann að sækja miðað við skoðanakannanir. En líklegt má telja að skattamálin muni breyta því.

Washington Post bendir á að umfjöllun New York Times hafi fyllt á vopnabúr Joe Biden sem hafi nú yfir ýmsu að ráða til að ráðast harkalega að Trump sem hefur átt erfitt með að útskýra skattamál sín. Hann hefur barist harkalega fyrir að halda þeim leyndum en á sunnudaginn var leyndinni svipt af skattamálum hans. Trump sagði sjálfur að um falsfrétt væri að ræða en hefur ekki lagt fram nein gögn til að afsanna það sem fram kemur í umfjöllun New York Times.

Skattamálin verða því örugglega ofarlega á baugi í kvöld og margir hafa eflaust áhuga á þeim því Trump greiddi minna í skatt en meðal millistéttar Bandaríkjamaður.

Kosningaframboð Biden hóf strax auglýsingaherferð, sem beinist að Trump, á grunni skattaupplýsinganna. Til dæmis hefur verið auglýst á netinu þar sem skattgreiðslur Trump eru bornar saman við skattgreiðslur millistéttarfólks.

„Hversu miklu meira greiddir þú í skatt en Trump forseti?“

skrifaði Biden á Twitter og sett með hlekk á vefsíðu þar sem „Skattareiknivél Trump“ er að finna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig
FréttirPressan
Fyrir 4 dögum

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?