fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Pressan

Innflytjendur frá ríkjum utan Vesturlanda kosta Dani 690 milljarða á ári

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 30. júní 2020 07:01

Mörg erlend ríki stunda njósnir í Danmörku.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kostnaður Dana vegna innflytjenda frá ríkjum utan Vesturlanda og afkomenda þeirra var um 33 milljarðar danskra króna árið 2017. Það svarar til um 690 milljarða íslenskra króna á núverandi gengi. Kostnaðurinn hafði þá lækkað um fjóra milljarða danskra króna frá árinu áður. Þetta kemur fram í nýju uppgjöri frá fjármálaráðuneytinu.

Jótlandspósturinn skýrir frá þessu. Ráðuneytið segir að útreikningarnir séu byggðir á nýjustu upplýsingum um þennan samfélagshóp. Í fréttatilkynningu er haft eftir Mattias Tesfaye, ráðherra útlendingamála, að hann gleðjist yfir að tölurnar færist í rétta átt en það gangi allt of hægt. Nú sé glímt við gamlar skuldir sem hafi myndast vegna misheppnaðrar pólitískrar stefnu í málaflokknum.

Fjármálaráðuneytið birti einnig uppgjör vegna kostnaðar við innflytjendur frá Vesturlöndum og afkomenda þeirra. Hann reyndist í raun ekki til staðar því þessir innflytjendur skiluðu um sjö milljörðum danskra króna í plús í ríkissjóð árið 2017.

Í heildina námu útgjöld danska ríkisins vegna innflytjenda og afkomenda þeirra því 25 milljörðum danskra króna árið 2017.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 10 klukkutímum

Barnamúmían dularfulla – Fundu dánarorsökina

Barnamúmían dularfulla – Fundu dánarorsökina
Pressan
Fyrir 10 klukkutímum

Aukin glæpatíðni á Tenerife

Aukin glæpatíðni á Tenerife
Pressan
Í gær

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin
Pressan
Í gær

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“
Pressan
Í gær

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig
Pressan
Í gær

Svona getur B12-vítamínskortur komið fram í munninum

Svona getur B12-vítamínskortur komið fram í munninum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Geimfarar yfirgáfu Alþjóðlegu geimstöðina vegna súrefnisleka

Geimfarar yfirgáfu Alþjóðlegu geimstöðina vegna súrefnisleka
Pressan
Fyrir 2 dögum

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman