Í tístum sínum sagði hann að bandarísk innflytjendayfirvöld, ICE, „muni byrja að flytja milljónir ólöglegra innflytjenda, sem komu á ólöglega hátt til Bandaríkjanna, úr landi“.
„Þeir verða fluttir úr landi jafn hratt og þeir komu.“
Sagði Trump og gagnrýndi demókrata um leið fyrir að vilja ekki gera „nóg“ til að „leysa vandann við landamærin“.
En ekki er enn vitað hvort flytja eigi milljónir manna úr landi eins og Trump segir. ICE hefur ekki sagt neitt um málið og í umfjöllun CBS er bent á að óvenjulegt sé að yfirvöld skýri frá svona aðgerðum fyrirfram.
Samkvæmt opinberum tölum voru um 400.000 ólöglegir innflytjendur fluttir úr landi 2012 og er það mesti fjöldi brottvísana á einu ári í Bandaríkjunum til þessa.