fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Pressan

Níðingsverk íþróttamannsins – Af hverju lét Facebook myndbandið vera aðgengilegt í 10 klukkustundir?

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 25. janúar 2019 06:40

Skyggð mynd af manninum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Allir reikningar höfðu verið greiddir og allt virtist vel undirbúið. Svo virðist sem maðurinn hafi hugsað um þetta og undirbúið um töluverða hríð. Að lokum lét hann til skara skríða og myrti tvo barnunga syni sína. Málið er ættingjum, vinum og sænsku þjóðinni óskiljanlegt með öllu. Hann tilkynnti um morðin í beinni útsendingu á Facebook og tók síðan eigið líf. Þá hafa vaknað spurningar af hverju það tók Facebook 10 klukkustundir að fjarlægja upptökuna.

Eins og DV skýrði frá í gær myrti sænskur karlmaður tvö börn sín, drengi, í Sala á miðvikudagskvöldið og tók síðan eigið líf. Hann skaut syni sína til bana og notaði byssuna síðan til að taka eigið líf. Hann skýrði frá morðunum í beinni útsendingu á Facebook og tók síðan eigið líf. Lögreglunni var strax tilkynnt um þetta af fólki sem sá útsendinguna á Facebook en það var um seinan, feðgarnir voru látnir er að var komið. Maðurinn var þekktur íþróttamaður í Svíþjóð og hafði keppt á meðal þeirra bestu í sinni grein. Hann var 45 ára.

Expressen hefur eftir nokkrum vinum hans að honum hljóti að hafa liðið illa að undanförnum. Einn vinur hans sagði að hann hafi leitað mikið eftir samskiptum við fólk undanfarið og að nýverið hafi hann fengið slæm tíðindi. Annar vinur sagði að mikil sorg hafi einkennt líf mannsins í gegnum tíðina.

Vinir hans og kunningjar úr íþróttum minnast hans sem glaðs og félagslynds manns.

Lögreglan hefur staðfest að hún hafi upptöku af Facebookútsendingu mannsins undir höndum og hafi skýra mynd af atburðarásinni þetta kvöld. Expressen segist hafa heimildir fyrir að í útsendingunni hafi maðurinn sagt að hann væri búinn að skjóta „strákana“ sína og að hann viti ekki hvort Facebook muni stöðva útsendinguna. Hann sagði jafnframt að hann hafi hugleitt þetta lengi og hafi greitt alla reikninga.

Útsendingin hófst um klukkan 21 og var aðgengileg á Facebook í 10 klukkustundir áður en samfélagsmiðillinn tók hana úr sýningu. Þetta hefur vakið umræður í Svíþjóð um viðbrögð Facebook við atburðum sem þessu. Bent hefur verið á að í útsendingunni hafi maðurinn komið boðskap sínum á framfæri og jafnvel fengið athygli sem hann var að leita að eftir að hafa myrt syni sína. Þá vilja margir meina að ekki eigi að ræða um atburð sem þennan sem fjölskylduharmleik heldur sem morð enda hafi tvö varnarlaus börn verið myrt með köldu blóði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig
FréttirPressan
Fyrir 4 dögum

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?