Maðurinn var fluttur á sjúkrahús þar sem hann var úrskurðaður látinn að sögn Fox News. Ekki liggur ljóst fyrir hversu hátt uppi hann var þegar hann hrapaði.
Nú tekur við rannsókn öryggiseftirlits ríkisins þar sem rannsakað verður hvort öllum öryggisákvæðum og reglum hafi verið fylgt við vinnu mannsins. Rannsóknin getur tekið allt að sex mánuði.