Það er blaðið Samtiden sem stendur á bak við myndina sem á að sögn að „segja sögu jafnaðarmanna eins og hún hefur aldrei fyrr verið sögð“. Samtiden er í eigu Svíþjóðardemókratanna og var myndin fjármögnuð að hluta af flokknum. Myndin heitir „Ett folk, ett parti – Socialdemokraternas historia“. Í henni er farið yfir sögu jafnaðarmannaflokksins með aðaláherslu á fyrri helmingi síðustu aldar. Fjallað er um kynþáttahyggju í Svíþjóð á þeim tíma, ófrjósemisaðgerðir sem fólk var þvingað í og gyðinga sem Svíar vildu ekki taka við í upphafi síðari heimsstyrjaldarinnar. Allt eru þetta viðkvæm málefni sem tengjast jafnaðarmönnum sem hafa verið nær linnulaust við völd í Svíþjóð undanfarna áratugi.
Sænska ríkisútvarpið hefur eftir Lena Rådström Baastad, ritara jafnaðarmannaflokksins, að það að Svíþjóðardemókratarnir, rasistaflokkur í nútímasamfélagi, reyni að gera stefnu sína gilda með því að fjalla um þetta sé fáránlegt“.
Dick Erixon, aðalritstjóri Samtiden, sagði í samtali við Sænska ríkisútvarpið að myndin hafi verið gerð þar sem mikil umræða hefur verið um upphaf Svíþjóðardemókratanna og ýmislegt þeim tengt. Það hafi þótt eðlilegt að beina sjónum fólks að öðrum flokkum og þá helst flokknum sem var við völd nær alla síðustu öld.
Baastad sagði að það væri ekkert leyndarmál að sterk andúð hafi verið gegn gyðingum í Svíþjóð á fjórða áratugnum en það væri fáránlegt að Svíþjóðardemókratarnir reyni að nota það til að gera eigin stefnu gilda. Hún sagði að tíðarandinn hafi verið annar áður fyrr og ýmsar hugsanir og viðhorf hafi þá þótt jafngild vísindum. Flestir hafi horfið frá slíkum skoðunum og viðhorfum en Svíþjóðardemókratarnir reyni að koma kynþáttahyggju að í stefnu sinni og að þeir trúi ekki að allir fæðist jafnir. Þetta hafi komið skýrt í ljós í orðum Björn Söder, talsmanns flokksins, sem sagði nýlega að hennar sögn að Samar og gyðingar séu ekki Svíar.