fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024

Íslendingar gleyma ekki Kúrdunum

Ritstjórn DV
Föstudaginn 5. ágúst 2016 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eitt er alveg víst. Ef Evrópa sinnir ekki neyðarkalli Kúrda í dag, þá munu þeir minna á sig á morgun þegar þeir banka upp á sem flóttamenn. Það gerðu þeir margir hverjir þegar þeir flúðu til að bjarga lífi sínu og sinna undan ofbeldi og morðárásum herja Saddams Hussein í Kúrdahéruðum Íraks, á sínum tíma.
Kúrdar eru á bilinu 30 og 40 milljónir talsins og byggja einkum héruð í fjórum ríkjum; Íran, Írak, Sýrlandi og Tyrklandi.

Sigursælir gegn ISIS

Í baráttunni gegn ISIS í norðanverðu Sýrlandi, hafa Kúrdar sýnt og sannað að þeir hafa öllum öðrum fremur verið sigursælir, reyndar svo mjög að menn gera því skóna að ein ástæðan fyrir því að Erdogan Tyrklandsforseti og hans lið ákvað að láta til skarar skríða gegn þeim fyrir nákvæmlega ári, í ágúst í fyrra, eftir tveggja ára þíðutímabil, hafi verið sú að hann hafi óttast að Kúrdar myndu færa sig upp á skaftið innan landamæra Tyrklands í kjölfar sigra sinna í Sýrlandi.

Önnur ástæða hafi svo verið sú að eftir kosningasigur HDP, stjórnmálaflokks lýðræðissinnaðra Kúrda í júní í fyrra, missti Erdogan meirihluta sinn á þingi. Boðaði til nýrra kosninga um haustið eftir að hann hafði með ofsóknum endurvakið kúrdískar hryðjuverkasveitir til lífsins með skefjalausu ofbeldi í garð Kúrda almennt. Í haustkosningunum endurheimti hann meirihluta sinn en tókst þó ekki það ætlunarverk sitt að koma flokki Kúrda út af þinginu.

Fá hvorki vatn né rafmagn

Við svo búið var gripið til annarra ráðstafana. Yfir eitt hundrað lýðræðislega kjörnum borgar- og bæjarstjórum í héruðum Kúrda var bolað úr embætti, sumir fangelsaðir, aðrir hraktir í útlegð. Síðan var fyrirskipað útgöngubann sem meira og minna hefur staðið yfir í eitt ár í tuttugu og tveimur héruðum í Kúrdabyggðum í suðausturhluta Tyrklands með skelfilegum afleiðingum að mati Amnesty International sem segir fólkinu meinaður aðgangur að vatni og rafmagni sem sé skýlaust mannréttindabrot.

Í gögnum sínum staðhæfði Evrópuráðið í júní síðastliðnum að 355 hundruð þúsund manns væru á vergangi og 1,6 milljónir hefðu orðið fyrir alvarlegum búsifjum af völdum þessa.

Þingmenn leiddir fyrir dómara

Þá voru í maí síðastliðnum numin úr gildi ákvæði í stjórnarskrá Tyrklands, sem tryggðu þingmönnum þinghelgi. Í kjölfarið hafa 152 þingmenn verið lögsóttir aðallega vegna ummæla sem sögð eru stuðla að hryðjuverkum! Nær allir þingmennirnir sem sótt er að með þessum hætti eru úr röðum Kúrda.
Síðan þekkja menn úr fréttum síðustu vikna lögsóknir og ofsóknir gegn blaðamönnum. Þær færðust mjög í aukana eftir „valdaránstilraunina“ 15. júlí, sem sumir fréttaskýrendur útiloka ekki að hafi verið sviðsett til að skapa skálkaskjól.

Þverpólitísk samstaða

Eftir að ofsóknirnar mögnuðust í Tyrklandi síðari hluta júlímánaðar – dómarar og saksóknarar sem ekki hlýddu valdboði voru nú reknir í stórum hópum – óskaði Steinunn Þóra Árnadóttir, þingkona VG, eftir því að utanríkismálanefnd þingsins kæmi saman til fundar til að ræða afstöðu íslenskra stjórnvalda og hvernig henni væri komið á framfæri.

Þessi fundur var haldinn í vikunni og sat utanríkisráðherra fyrir svörum en ég var fulltrúi VG á fundinum og vakti ég þar athygli á framangreindum þáttum.

Frá því er skemmst að segja að fundurinn var afar gagnlegur og ríkti um það þverpólitísk samstaða að mótmæli Íslands ættu ekki að einskorðast við mannréttindabrot sem framin hefðu verið síðustu vikur heldur skyldi einnig horft til ofsókna á hendur Kúrdum síðustu mánuði. Undir þetta tók utanríkisráðherra, Lilja Alfreðsdóttir, og er það vel.

Þá mun enginn vafi ríkja

Nú er þess beðið að utanríkismálanefnd Alþingis álykti í þessa veru og að þeirri samþykkt verið komið á framfæri á þeim vettvangi sem við eigum helst snertiflöt með Tyrkjum. Sá vettvangur heitir NATO. Þegar þetta hefur verið gert mun enginn þurfa að velkjast í vafa um að Ísland vilji standa vörð um lýðréttindi í Tyrklandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Siggi stormur óvenju bjartsýnn varðandi sumarið – „Ég er eiginlega í sjöunda himni yfir þessu”

Siggi stormur óvenju bjartsýnn varðandi sumarið – „Ég er eiginlega í sjöunda himni yfir þessu”
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Ógeðslegt athæfi – Pissaði í glas og skvetti á aðra áhorfendur

Ógeðslegt athæfi – Pissaði í glas og skvetti á aðra áhorfendur
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Ofbeldismenn herja á starfsfólk Héraðssaksóknara

Ofbeldismenn herja á starfsfólk Héraðssaksóknara
Pressan
Fyrir 6 klukkutímum

Leikfimiskennari sakaður um að taka nektarmyndir af yfir 100 stúlkum

Leikfimiskennari sakaður um að taka nektarmyndir af yfir 100 stúlkum
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Setur glæsilegt hús sitt á sölu – Vill fá 800 milljónir fyrir það

Setur glæsilegt hús sitt á sölu – Vill fá 800 milljónir fyrir það
Pressan
Fyrir 7 klukkutímum

Varpa sprengju inn í Gilgo-morðmálið – Er lögreglan að fela eitthvað ?

Varpa sprengju inn í Gilgo-morðmálið – Er lögreglan að fela eitthvað ?
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Miklar breytingar á enska bikarnum um næstu helgi – Ekki spilað í deildinni um sömu helgi

Miklar breytingar á enska bikarnum um næstu helgi – Ekki spilað í deildinni um sömu helgi
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Eiginkona Gundogan blandar sér í stríðið í klefanum hjá Barcelona

Eiginkona Gundogan blandar sér í stríðið í klefanum hjá Barcelona