fbpx
Þriðjudagur 12.maí 2026
Fréttir

Ummæli Jens Garðars á Alþingi í gær vekja mikla úlfúð – „Fullkomlega ömurlegt“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 29. janúar 2026 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jens Garðar Helgason, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, hefur verið gagnrýndur harðlega vegna orða sem hann lét falla á Alþingi í gær.

Ummælin féllu í umræðum um útlendingafrumvarpið svokallaða og velti Jens því upp hvort ekki væri tímabært að senda þá Palestínumenn sem hingað hafa komið til síns heima. Nefndi hann að friður væri kominn á í Palestínu og mikil uppbygging fram undan.

Vísir og Mbl.is fjölluðu meðal annars um orð Jens Garðars sem fagnaði einnig orðum Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra þess efnis að hugsanlega yrðu hælisleitendur frá Sýrlandi sendir til síns heima þar sem aðstæður í landinu hafa skánað.

„Ég velti því fyrir mér, virðulegur forseti, en hvað með Palestínu? þá Palestínumenn sem hafa komið hér. Nú er kominn friður í Palestínu. Það er verið að skipa svokallaða uppbyggingarnefnd fyrir Gasa. Er ekki kominn tími á að þeir Palestínumenn sem hingað komu, að þeir fari heim aftur til þess að taka þátt í því uppbyggingarstarfi sem er fram undan þar? Og vonandi kemst friður fljótlega á í Úkraínu,“ sagði hann.

Ummæli Jens Garðars féllu ekki vel í kramið og skrifaði til dæmis Egill Helgason, fjölmiðlamaður og samfélagsrýnir, færslu um málið.

„Mikið er leiðinlegt að heyra fólk tala úr ræðustóli Alþingis um hluti sem það hefur ekki vit á eða hefur ekki nennt að kynna sér. Heldur Jens Garðar virkilega að það ástand sem ríkir í Palestínu sé friður?“

Bent hefur verið á að aðstæður á Gaza séu mjög erfiðar fyrir íbúa. Breska blaðið The Guardian greindi til dæmis frá því á dögunum að þúsundir krabbameinssjúkra einstaklinga fengju enga meðferð við sjúkdómi sínum.

Tónlistarmaðurinn Pálmi Gunnarsson sagðist í athugasemd við færslu Egils mæla með því að Jens Garðari verði boðið á Gaza-svæðið til að kynna sér málið. „Augljóslega veit hann ekkert í sinn haus þegar kemur að ástandinu fyrir botni Miðarjarðarhafs. Hann gæti tekið Snorra og Sigmund Davíð með sér,“ sagði hann.

„Fullkomlega ömurlegt,“ sagði Rósa Björk Brynjólfsdóttir, fyrrverandi þingkona. Önnur fyrrverandi þingkona, Nichole Leigh Mosty, tók í svipaðan streng. „Erum við að senda fólk heim bara til að losna við það núna. Er það virkilega þar sem við erum?“

„Rasismi, hreinn og klár,“ sagði kvikmyndagerðarmaðurinn Björn B. Björnsson. Aðrar athugasemdir við færslu Egils voru í svipuðum dúr. „Þessi maður býður væntanlega fjölskyldunni sinni í frí á Gasa næsta sumar, ekki málið,“ sagði til dæmis einn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gísli Marteinn talar tæpitungulaust um Borgarlínu og lætur Hildi heyra það – „Make Hildur great again“

Gísli Marteinn talar tæpitungulaust um Borgarlínu og lætur Hildi heyra það – „Make Hildur great again“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir frétt Morgunblaðsins sýna að hún hafi reynt að koma í veg fyrir Græna gímaldið- „Hafði ég í raun ekkert formlegt umboð til að hlutast til um málið“

Segir frétt Morgunblaðsins sýna að hún hafi reynt að koma í veg fyrir Græna gímaldið- „Hafði ég í raun ekkert formlegt umboð til að hlutast til um málið“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þótti meintur kinnhestur Ástráðs alvarlegt mál en ver nú ofbeldismyndband eigin flokksmanna

Þótti meintur kinnhestur Ástráðs alvarlegt mál en ver nú ofbeldismyndband eigin flokksmanna
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Oddviti Miðflokksins segir ofbeldisatriði gegn „libba“ hafa verið „sprell“ – Flokkurinn fjarlægði myndbandið

Oddviti Miðflokksins segir ofbeldisatriði gegn „libba“ hafa verið „sprell“ – Flokkurinn fjarlægði myndbandið
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Veltir fyrir sér hvort Þjóðleikhúsið sé að reyna að losna við hana – „Ekki er öll vitleysan eins!“

Veltir fyrir sér hvort Þjóðleikhúsið sé að reyna að losna við hana – „Ekki er öll vitleysan eins!“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Skipulagsfræðingur vill endurskoða samgöngustefnu Reykjavíkur – Sundabraut verði hraðað og ný hverfi byggð

Skipulagsfræðingur vill endurskoða samgöngustefnu Reykjavíkur – Sundabraut verði hraðað og ný hverfi byggð