fbpx
Mánudagur 11.maí 2026
Fréttir

Lögregla lagði hald á bíl manns sem hefur ítrekað gerst brotlegur

Ritstjórn DV
Mánudaginn 11. maí 2026 07:31

Lögreglustöðin við Hverfisgötu. Mynd: Maggi gnúsari.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tæplega 50 verkefni voru skráð í kerfi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á tímabilinu frá klukkan 17 í gær til klukkan fimm í morgun.

Í umdæmi lögreglustöðvar 1 voru höfð afskipti af ökumanni vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Þetta var í „þriðja sinn eða oftar“ sem hann er stöðvaður réttindalaus og var bifreið mannsins haldlögð vegna endurtekinna brota, að því er fram kemur í skeyti lögreglu.

Í sama umdæmi er eitt heimilisofbeldismál til rannsóknar eftir nóttina.

Í umdæmi lögreglustöðvar 2, sem sinnir Hafnarfirði og Garðabæ, var tilkynnt um ungmenni á krossurum þar sem þau voru að spæna upp gras. Þeim var fylgt eftir með dróna að heimili sínu og eiga væntanlega yfir höfði sér einhvers konar refsingu. Í sama umdæmi var máli sinnt þar sem hótanir voru tilkynntar.

Í umdæmi lögreglustöðvar 4, sem sinnir Grafarvogi, Árbæ og Mosfellsbæ, hafði lögregla afskipti af réttindalausum ökumanni. Sá hefur raunar aldrei öðlast ökuréttindi og var þetta í fjórða sinn sem hann er kærður fyrir sama brot. Þá var hann með barn í bifreiðinni og var barnavernd látin vita.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dorrit harðlega gagnrýnd fyrir að nudda sér upp við hægri öfgamanninn Farage – „Ótrúlega ógeðfelldur maður“

Dorrit harðlega gagnrýnd fyrir að nudda sér upp við hægri öfgamanninn Farage – „Ótrúlega ógeðfelldur maður“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þriggja daga vopnahlé í Úkraínu

Þriggja daga vopnahlé í Úkraínu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Komin með ríkisborgararétt eftir hálfrar aldar búsetu á Íslandi og kostulega viðureign við Útlendingastofnun

Komin með ríkisborgararétt eftir hálfrar aldar búsetu á Íslandi og kostulega viðureign við Útlendingastofnun
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Pinnahælar reyndust leigjendum dýrkeyptir

Pinnahælar reyndust leigjendum dýrkeyptir