fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Fréttir

Segja fjárhagsstöðu Seltjarnarness enn versna – Handbært fé um áramót dugði fyrir 3 daga rekstri

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 29. apríl 2026 19:00

Mynd: Fréttablaðið/Gunnar V. Andrésson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ársreikningur Seltjarnarness fyrir árið 2025 var undirritaður af bæjarstjórn í dag. 

Minnihluti bæjarstjórnar segir ársreikninginn staðfesta alvarlega fjárhagsstöðu bæjarins. Halli A-hluta nam 477,5 milljónum króna, sem er talsvert meira en áætlanir gerðu ráð fyrir.

„Til að setja þessa tölu í samhengi er þessi halli þrefalt hærri en halli á rekstri Reykjavíkurborgar, sé hallanum deilt á íbúafjölda sveitarfélaganna.“

Minnihlutinn segir núverandi ástand ekki nýtt af nálinni. „Það fylgir tíu ára mynstri hallareksturs þar sem uppsafnað tap nemur nú 3,78 milljörðum króna. Skuldir á hvern íbúa hafa hækkað um 716 þúsund krónur á einu ári og standa nú í 1.873.000 krónum á hvert mannsbarn. Samhliða þessu hefur lausafjárstaðan versnað til muna og átti bærinn um áramót aðeins handbært fé sem dugir fyrir um þriggja daga rekstri.

Í ljósi stöðunnar lagði Sigurþóra Bergsdóttir, oddviti Samfylkingar og óháðra fram svohljóðandi bókun við afgreiðslu ársreikningsins:

„Ársreikningur þessa árs staðfestir því miður þá dapurlegu þróun sem við höfum varað við árum saman. […] Í stað þess að auka ekki skuldir og fjárfesta í grunnþjónustu er bærinn fastur í viðvarandi hallarekstri sem hefur nú varað í tíu ár. Uppsafnaður halli síðustu tíu ára upp á 3,7 milljarða króna á A-hluta er ekki hægt að skýra með ófyrirséðum áföllum, þetta er mynstur sem því miður virðist ekki vera að breytast. […] Þessi staða er ávísun á skert þjónustustig og skort á fjárfestingargetu til framtíðar“.

Fulltrúar minnihlutans benda á að þessi fjárhagslega óstjórn bitni beint á innviðum og þjónustu. Sem dæmi er nefnd skert þjónusta við ungmenni, holóttar götur, ónógt viðhald skólahúsnæðis og staða félagsheimilisins sem stendur „tómt og í tætlum“, sem táknmynd hrörnunar.

Minnihlutinn segir að með óbreyttri stefnu stefni bærinn í fjárhagslegt óefni þar sem eina leiðin út verður annað hvort harkalegur niðurskurður á lögbundinni þjónustu eða verulegar skattahækkanir.

„Það er mat Samfylkingarinnar og óháðra að verið sé að veðsetja framtíðartækifæri unga fólksins á Seltjarnarnesi.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Sláandi þróun meðal íslenskra ungmenna – Ofbeldi, ójafnrétti, persónunjósnir, klám og leynilegir nektarmyndahópar

Sláandi þróun meðal íslenskra ungmenna – Ofbeldi, ójafnrétti, persónunjósnir, klám og leynilegir nektarmyndahópar
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Fótur hlaupakonu í Londonmaraþoninu „sprakk“ – Skórinn alblóðugur

Fótur hlaupakonu í Londonmaraþoninu „sprakk“ – Skórinn alblóðugur
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Reyndur ferðabloggari um Ísland – „Þetta er ódýrasta leiðin til að ferðast um Ísland án þess beinlínis að pína sig“

Reyndur ferðabloggari um Ísland – „Þetta er ódýrasta leiðin til að ferðast um Ísland án þess beinlínis að pína sig“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Afhjúpa „rauða hverfið“ í Reykjavík – Nágrannar reyna að fæla vændiskaupendur frá með skjávarpa

Afhjúpa „rauða hverfið“ í Reykjavík – Nágrannar reyna að fæla vændiskaupendur frá með skjávarpa
Fréttir
Í gær

Lára ósátt við bílastæðamálin við Laugaveg 26 – „Svo eru þau að rukka allan sólarhringinn“

Lára ósátt við bílastæðamálin við Laugaveg 26 – „Svo eru þau að rukka allan sólarhringinn“
Fréttir
Í gær

Risastórt kókaínmál á Austurlandi

Risastórt kókaínmál á Austurlandi
Fréttir
Í gær

Gylfi furðar sig á frétt Morgunblaðsins – „Hrein og klár afvegaleiðun umræðunnar!“

Gylfi furðar sig á frétt Morgunblaðsins – „Hrein og klár afvegaleiðun umræðunnar!“
Fréttir
Í gær

Kjúklingaskítsfýla veldur Skagamönnum óþægindum – „Íbúar eiga ekki að þurfa að sætta sig við þetta. Punktur“

Kjúklingaskítsfýla veldur Skagamönnum óþægindum – „Íbúar eiga ekki að þurfa að sætta sig við þetta. Punktur“