

Lindex á Íslandi hefur gert samstarfssamning við Kvennaathvarfið um að útvega fatnað fyrir konur og börn sem leita til athvarfanna í Reykjavík og á Akureyri. Markmið samstarfsins er að bæta móttöku og aðbúnað þeirra sem leita í skjól hjá Kvennaathvarfinu, eins og segir í fréttatilkynningu.
Samkvæmt samkomulaginu mun Lindex leggja til nærföt og sokka fyrir konur sem koma allslausar til dvalar. Öll börn sem koma í athvarfið fá ný náttföt við komuna.
Með samstarfinu telst Lindex á Íslandi til bakhjarla Kvennaathvarfsins og styður þannig við mikilvægt hlutverk athvarfsins í samfélaginu.
„Það skiptir miklu máli að geta tekið á móti fólki af hlýju og virðingu á erfiðum stundum. Einfaldir hlutir eins og ný náttföt við komuna í athvarfið geta stuðlað að því að börn finni að þau eru komin á stað þar sem þau eru örugg og velkomin,“ segir Linda Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins.
Kvennaathvarfið hvetur jafnframt önnur fyrirtæki til að taka þátt í að styðja við starfsemina. Með sameiginlegu átaki er hægt að skapa öruggara skjól og betri aðstæður fyrir þær konur og börn sem þurfa á því að halda.
Kvennaathvarfið er opið allan sólarhringinn fyrir konur og börn sem búa við ofbeldi á Íslandi.