fbpx
Þriðjudagur 25.mars 2025
Fréttir

Heiftúðugar nágrannaerjur í Kópavogi – Íbúi réðst með ofbeldi á byggingarstjóra – „Ég hef aldrei upplifað annað eins“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Sunnudaginn 16. febrúar 2025 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Byggingarstjóri við framkvæmdir á íbúð í fjölbýlishúsi í Kópavogi hefur verið dreginn inn í ágreining íbúðaeigenda um framkvæmdir í húsinu. Sakar byggingarstjórinn einn íbúa í húsinu um ofbeldi og skemmdarverk. Lögregla var kölluð til á föstudag og laugardag þegar upp úr sauð á vettvangi í þessari annars friðsælu götu í Kópavogi.

„Hann henti í mig 25 kílóa sandpoka, krækti stól í mig, öskraði á mig, tók mig hálstaki, henti í mig kefli…ég passaði mig að gera ekki neitt og er ég þó sæmilega hraustur,“ segir byggingarstjórinn í viðtali við DV.

Fjallað var um ágreininginn í húsinu í DV haustið 2024, í tengslum við úrskurð Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Krafðist eigandi hluta hússins að framkvæmdir annars eiganda í húsinu yrðu stöðvaðar, en þær fólust meðal annars í því að rífa niður vegg og breyta neysluvatns- og hitalögnum. Vildi kærandinn í málinu að framkvæmdirnar yrðu stöðvaðar á meðan nefndin myndi kanna lögmæti þeirra. Ekki var orðið við kröfunni.

Sjá einnig: Nágrannaerjur í Kópavogi – Sætti sig ekki við að veggur væri brotinn niður og lögnum breytt

Framkvæmdirnar snúast um að færa til herbergi, rífa niður vegg og gera lítilsháttar breytingar á neysluvatns- og hitalögnum. Byggingarfulltrúinn gaf út byggingarleyfi 7. ágúst 2024. Úrskurðarnefndin komst að þeirri niðurstöðu að framkvæmdirnar væru of langt komnar  til að hægt væri að stöðva þær. Barátta eigandans fyrir því að stöðva framkvæmdirnar virðist ekki bara hafa verið lögformleg, samkvæmt byggingarstjóranum hefur hann gripið til róttækari og ólöglegra aðgerða.

Sakaður um skæruhernað og skemmdarverk

„Ég er starfandi byggingastjóri vegna breytinga á íbúð sem ungt par keypti og vildi láta gera upp. Ég var ráðinn byggingarstjóri yfir verkefninu síðasta sumar. Það hefur vægast sagt gengið á ýmsu síðan þá,“ segir byggingarstjórinn. Sérstakur styrr hefur staðið um gólfhitalagnir sem fólkið lét leggja.

„Nágranninn á neðri hæðinni hefur verið að reyna að stöðva framkvæmdir, taka verkfæri og henda út, svona skæruhernaður. Síðan gerist það í desember þegar pípari ætlaði að fara að leggja lagnir í gegnum skorsteininn, þá eru þau búin að láta steypa 1,4 m upp í skorsteininn, þannig að ekki vera hægt að fara með lagnirnar þarna niður samkvæmt teikningu. Síðan gerist það þarna í desember að það er kallaður til maður til að kjarnabora, að þá reyna þau að stöðva verkið. Lögregla kom á vettvang, fyrst tveir lögreglumenn og síðan tveir í viðbót og loks kom varðstjórinn vegna þess að lögreglan vissi ekki hvað þau myndu gera.“

Myndin er frá einum af útköllum lögreglu á staðinn vegna nágrannaerja og átaka.

Hráki og svívirðingar

Byggingarstjórinn segir að honum hafi síðan lent saman við þennan íbúa 15. janúar. „Ég var þá mættur þarna á fund með verktaka sem var að taka að sér ákveðna verkþætti. Hann hótar mér þá öllu illu, öskrar á mig og hrækir á mig. Að þessu voru þrjú vitni.“

Lögmaður byggingarstjórans hefur sent manninum kröfubréf fyrir hönd hans vegna þessa atviks. Krefur hann manninn um afsökunarbeiðni, miskabætur upp á 250 þúsund krónur og lögmannskostnað 400 þúsund krónur. Samkvæmt byggingarstjóranum voru tvö vitni að atlögunni en þess skal geta að það er refsivert að hrækja á annan mann og getur það varðað bæði sektum og fangelsi. Verði maðurinn ekki við kröfum hans má hann eiga von á málshöfðun.

Ljóst er hins vegar að atvikið á föstudag er miklu alvarlegra enda um meinta líkamsárás að ræða. Var lögregla kölluð til og kærði byggingarstjórinn árásina.

Tilraun til skemmdarverka á laugardagsmorgun

„Um miðnætti braust hann inn í íbúðina á efri hæðinni og var hann þá handtekinn. Síðan gerist það í morgun [Ath. laugardagsmorgun] að einhver á hans vegum gerði tilraun til að brjóta niður burðarvirki í húsinu, þ.e.a.s. strompinn, en slíkt má ekki gera án byggingarleyfis. Lögregla kom aftur á vettvang og þessi maður var handtekinn.“

Virðist því sem lögregla hafi komið þrisvar á staðinn á innan við sólarhring.

DV hringdi í íbúann sem borinn er umræddum sökum og sagðist hann ekki vilja ræða við málið og sagðist ekkert kannast við lýsingar blaðamanns á málavöxtum. Stuttu síðar hringdi kona úr símanúmerinu sem blaðamaður hafði hringt í og var heitt í hamsi. Varaði hún blaðamann við því að fjalla um málið og rjúfa friðhelgi einkalífsins. Blaðamaður minnti konuna á að fjölmiðlafrelsi væri í landinu en hét henni að gætt yrði að persónuvernd við skrifin. Rauf konan þá símtalið án þess að kveðja.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu gat ekki veitt upplýsingar um útköll lögreglu vegna málsins en símsvörun hjá lögreglu er mjög takmörkuð um helgar.

Byggingarstjórinn segir þessa lífsreynslu alla vera með ólíkindum. „Ég hef aldrei upplifað annað eins á öllum mínum starfsferli og ég hef aldrei heyrt um svona á Íslandi.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

„Lögin í dag segja að til dæmis mætti sjötug manneskja eiga í kynferðislegu sambandi við 15 ára gamalt barn“

„Lögin í dag segja að til dæmis mætti sjötug manneskja eiga í kynferðislegu sambandi við 15 ára gamalt barn“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Það sem Gunnar Smári vildi að Kristrún hefði sagt í Ásthildarmálinu – „En því miður kom bara eitthvert mjálm“

Það sem Gunnar Smári vildi að Kristrún hefði sagt í Ásthildarmálinu – „En því miður kom bara eitthvert mjálm“
Fréttir
Í gær

Jón boðar fleiri afhjúpanir – „Við vitum að það eru fleiri beinagrindur í skottinu hjá ykkur“

Jón boðar fleiri afhjúpanir – „Við vitum að það eru fleiri beinagrindur í skottinu hjá ykkur“
Fréttir
Í gær

Andra Snæ brugðið þegar hann fletti nafninu sínu upp

Andra Snæ brugðið þegar hann fletti nafninu sínu upp
Fréttir
Í gær

Vilja banna kyrkingaklám – „Er að hafa skaðleg áhrif á börn og samfélagið allt“

Vilja banna kyrkingaklám – „Er að hafa skaðleg áhrif á börn og samfélagið allt“
Fréttir
Í gær

Mátti bara nefna einn kvilla hjá heimilislækni – „Á ég sjálf að ákveða hvað er alvarlegast af þeim kvillum sem mig hrjá?“

Mátti bara nefna einn kvilla hjá heimilislækni – „Á ég sjálf að ákveða hvað er alvarlegast af þeim kvillum sem mig hrjá?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðmundur Ingi verði nýr mennta-og barnamálaráðherra

Guðmundur Ingi verði nýr mennta-og barnamálaráðherra
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lögregla kölluð til þegar tvær konur slógust fyrir utan skemmtistað í Hafnarfirði

Lögregla kölluð til þegar tvær konur slógust fyrir utan skemmtistað í Hafnarfirði