Fyrrum bæjarfulltrúi í Bandaríkjunum og meðlimur þjóðvarðliðsins í Massachusetts flúði nýlega land og er nú genginn til liðs við rússneska herinn til að berjast í stríðinu í Úkraínu. Maðurinn er eftirlýstur af bandarískum yfirvöldum vegna gruns um að hann hafi gerst sekur um barnaníð.
Wilmer Puello-Mota, sem er 28 ára, er fyrrum bæjarfulltrúi í Holyoka í Massachusetts. Hann hvarf þann 7. janúar síðastliðinn, tveimur dögum áður en hann átti að mæta fyrir dóm á Rhode Island vegna vörslu barnakláms og tilrauna til að hindra framgang réttvísinnar.
Í síðustu viku birtu rússnesk yfirvöld mynd af honum þar sem hann var að skrifa undir samning við rússneska herinn á ráðningarskrifstofu í Khanty-Mansiysk í vesturhluta Síberíu.
„Bandaríkjamaður skrifaði undir samning í ættjarðarástarmiðstöðinni í Khanty-Mansiysk,“ segir í myndskeiði sem Rússar birtu á Telegram.
The Guardian segir að svo virðist sem Puello-Mota hafi barist sem sjálfboðaliði með rússneska hernum við úkraínska bæinn Avdiivka í febrúar og hafi nú gengið formlega til liðs við herinn.
Í febrúar birtust myndir af manni, sem andlitið var gert ógreinilegt á, með bandaríska fánann í rústum bæjarins. „Ég er hér til að reisa bandaríska fánann sem tákn um vináttu og stuðning fyrir allt það sem fólk er að gera hérna. Ég er stoltur af að vera hér,“ sagði maðurinn á myndbandsupptöku. Er talið að þetta sé Puello-Mota.
Bandaríska dagblaðið Republican segir að ættingjar Pullo-Mota hafi þekkt rödd hans á upptökunni.
Hann var handtekinn á Rhode Island 2020 þegar lögreglan fann nektarmyndir af ungri stúlku í síma hans. Hann sagðist hafa talið hana vera 22 ára en hún var 17 ára.
Síðar var hann ákærður fyrir fölsun, svik og fyrir að hindra framgang réttvísinnar vegna þess að hann sagði yfirmanni sínum hjá þjóðvarðliðinu að sakargiftirnar um vörslu barnakláms væru rangar.