fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Fréttir

Arnar Þór kærir myndbirtingu Vísis – „Gróf aðför að mannorði mínu“

Ragna Gestsdóttir
Laugardaginn 18. maí 2024 13:00

Arnar Þór Jónsson Mynd: KSJ/DV

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arnar Þór Jónsson forsetaframbjóðandi hefur kært mynd Halldórs Baldursson sem birtist á Vísí í dag til Siðanefndar Blaðamannafélags Íslands. 

Á myndinni má sjá sjö frambjóðendur til embættis forseta Íslands, Arnar Þór, Ásdísi Rán Gunnarsdóttur, Höllu Tómasdóttur, Jón Gnarr, Katrínu Jakobsdóttur, Baldur Þórhallsson og Höllu Hrund Logadóttur. Á myndinni spyr Halla hin: „Eru einhverjir fleiri en ég með á tilfinningunni að allir séu að tala illa um sig?“

Arnar Þór segir myndina brjóta gegn siðareglum BÍ. „Þessa myndbirtingu hef ég kært til siðanefndar félagsins og krafist þess að málið verði tekið til skjótrar meðferðar. Á myndinni er undirrituðum stillt upp í búningi sem augljóslega er ætlað að líta út fyrir að vera búningur alræðissinna. Þessi framsetning er hvorki málefnaleg né fyndin, heldur meiðandi og ómálefnaleg,“ segir Arnar Þór. En á myndinni er hann klæddur í búning nasista.

„Undirritaður hefur á síðustu árum ritað tugi greina í blöð og tímarit, samtals ca. 1400 bls. Ekkert í því efni réttlætir þá framsetningu sem sjá má á umræddri mynd Halldórs Baldurssonar. Undirritaður hefur flutt fjölda fyrirlestra og erinda á almennum vettvangi, haldið úti bloggsíðu, flutt útvarpsávörp, mætti í tugi viðtala o.fl.  Þar er heldur ekkert sem gefur Halldóri né Vísi lögmætt tilefni til að setja persónu mína í það samhengi sem þarna getur að líta. Sá búningur sem hér um ræðir er táknmynd alls þess sem ég hef talað gegn, þ.e. valdboðs, stjórnlyndis, ofríkis, kúgunar, mannfyrirlitningar, stjórnlyndis og alræðis. Ég er málsvari klassísks frjálslyndis, frjálsræðis, einstaklingsfrelsis, lýðræðis, mannúðar, manngæsku, mannréttinda og valddreifingar. Framsetning Halldórs og Vísis er gróf aðför að mannorði mínu og þess er krafist að bæði teiknarinn og fjölmiðillinn verði áminntir fyrir brot, rangfærslur leiðréttar, umrædd mynd fjarlægð og ég beðinn afsökunar, bæði formlega og skriflega.“

Arnar Þór segir Framsetninguna bæði óheiðarlega og ósanngjarna. 

„Hefði Halldór skrifað þetta og vísir birt aðdróttanir þess efnis að undirritaður væri nasisti / fasisti, þá félli það væntanlega undir skilgreiningu á hatursorðræðu, þar sem alið væri á andúð og fordómum gegn mér. Framsetningin er hlutdræg og meiðandi. Myndin kristallar ófagleg vinnubrögð og brýtur gegn skyldum blaðamanna með því að grafa undan lýðræðislegri tjáningu og afbaka málefnalega umræðu. Framsetningin brýtur gegn skyldum blaðamanna gagnvart almenningi sem á rétt á að fá sannar upplýsingar settar fram á sanngjarnan og heiðarlegan hátt. Framsetningin hefur ekki sannleikann að leiðarljósi, brenglar staðreyndir og felur í sér órökstuddar ásakanir. Blaðamaður og fjölmiðillinn hafa ekki gætt að þeirri skyldu sinni að byggja framsetningu sína á áreiðanlegum upplýsingum. Framsetningin styðst ekki við neitt sem kalla mætti hlutlægni.  Þegar þetta er ritað hefur Blaðamannafélagið staðfest móttöku á kæru minni.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Kjúklingaskítsfýla veldur Skagamönnum óþægindum – „Íbúar eiga ekki að þurfa að sætta sig við þetta. Punktur“

Kjúklingaskítsfýla veldur Skagamönnum óþægindum – „Íbúar eiga ekki að þurfa að sætta sig við þetta. Punktur“
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Hildur ómyrk í máli: „Það þarf að taka erfiðar ákvarðanir, það er alveg ljóst“

Hildur ómyrk í máli: „Það þarf að taka erfiðar ákvarðanir, það er alveg ljóst“
Fréttir
Í gær

Pólsk kona fór til Íslands og skildi hund eftir í hryllingshúsi í heilt ár – Skítur og hland út um allt

Pólsk kona fór til Íslands og skildi hund eftir í hryllingshúsi í heilt ár – Skítur og hland út um allt
Fréttir
Í gær

Jafn vel Hollendingum blöskrar verðlagið á Íslandi – „Þig grunar ekki hversu sjúklega gráðugir Íslendingar geta verið“

Jafn vel Hollendingum blöskrar verðlagið á Íslandi – „Þig grunar ekki hversu sjúklega gráðugir Íslendingar geta verið“
Fréttir
Í gær

Fannst látinn við Háafoss

Fannst látinn við Háafoss
Fréttir
Í gær

Björgunarsveitir kallaðar út á hæsta forgangi eftir að sást til manns í gili við Háafoss

Björgunarsveitir kallaðar út á hæsta forgangi eftir að sást til manns í gili við Háafoss