fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Segja að Rússar hefji hugsanlega stórsókn í febrúar eða mars

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 30. janúar 2023 07:00

Pútín sendir hermenn að finnsku landamærunum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er hugsanlegt að her Vladímír Pútíns hefji stórsókn í Úkraínu í febrúar eða mars. Þetta hefur Bloomberg eftir heimildarmönnum, bæði innanbúðarmönnum og ráðgjöfum í Kreml.

Þessar upplýsingar styðja við það sem Úkraínumenn, NATO og ýmsir sérfræðingar hafa sagt að undanförnu um væntanlega stórsókn Rússa.

Ef sóknin hefst innan næstu 4 til 8 vikna þá verður það líklega áður en Úkraínumenn fá þá rúmlega 300 nýju skriðdreka sem bandalagsríki þeirra hafa heitið þeim.

Bloomberg hefur eftir heimildarmönnum sínum að Pútín sé enn sannfærður um að innrásin, sem hófst fyrir rúmum 11 mánuðum, muni enda með sigri Rússa, ekki síst vegna „hins stóra rússneska hers og viljans til að sætta sig við fórnir“.

Markmiðið með stórsókninni er ekki aðeins sagt vera að ná aftur frumkvæði í stríðinu heldur einnig binda á nokkurra mánaða kyrrstöðu og ósigra rússneska hersins. Einnig er markmiðið að leggja þrýsting á Úkraínu í sambandi við hugsanlegar viðræður um þau svæði sem Rússar hafa innlimað en hafa þó ekki full yfirráð yfir.

„Endurteknir ósigrar hafa orðið til þess að margir í Kreml eru orðnir raunsærri varðandi markmiðin og viðurkenna um leið að það verði að teljast ágætis frammistaða að halda núverandi víglínum óbreyttum,“ sögðu heimildarmenn Bloomberg.

Bandaríska hugveitan Institute for the Study of War (ISW) sagði í nýlegu stöðumati sínu um gang stríðsins að þær upplýsingar sem Bloomberg hefur fengið passi við mat ISW á sviðsmyndinni í Úkraínu. Segir hugveitan að Kremlverjar séu að undirbúa afgerandi aðgerðir, líklegast í Luhansk, á næstu sex mánuðum til að ná aftur frumkvæði og stöðva sigurgöngu Úkraínumanna.

Heimildarmenn Bloomberg segja að ný herkvaðning geti verið í kortunum í Rússlandi til að styrkja yfirvofandi stórsókn. Í haust voru 300.000 menn kvaddir í herinn. Það er mat vestrænna leyniþjónustustofnana að þessi fjöldi dugi ekki til að hefja stórsókn því Rússar hafi orðið fyrir svo miklu manntjóni fram að þessu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum
Pétur Einarsson látinn
Fréttir
Í gær

Brim fjárfestir í nýjasta kælibúnaði frá KAPP

Brim fjárfestir í nýjasta kælibúnaði frá KAPP
Fréttir
Í gær

Hefur þú stofnað bankareikning í Danmörku? Þá þarftu kannski að bregðast hratt við svo peningarnir þínir renni ekki í danska ríkiskassann

Hefur þú stofnað bankareikning í Danmörku? Þá þarftu kannski að bregðast hratt við svo peningarnir þínir renni ekki í danska ríkiskassann
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dómur kveðinn upp yfir manni sem réðst á starfsmann Landspítalans

Dómur kveðinn upp yfir manni sem réðst á starfsmann Landspítalans
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir það verða sannkallaða martröð fyrir Rússa ef þeir ráðast inn í stórborgina Kharkiv

Segir það verða sannkallaða martröð fyrir Rússa ef þeir ráðast inn í stórborgina Kharkiv