fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Fréttir

Björgunarsveitir kallaðar út á hæsta forgangi eftir að sást til manns í gili við Háafoss

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 26. apríl 2026 20:02

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Björgunarsveitir hafa verið kallaðar út á hæsta forgangi eftir að ferðamenn sáu til einstaklings ofan í gilinu við Háafoss. Ferðamennirnir höfðu samband við neyðarlínuna um 18:45 í kvöld. Frá þessu greinir Vísir.

Ekki er víst hvort ferðamennirnir hafi náð sambandi við manninn ofan í gilinu og ekki liggur fyrir hvort þarna sé um að ræða ferðamann sem skilaði sér ekki á gististað á þriðjudagskvöldið eftir að hann fór í göngu á svæðinu.

Umfangsmikil leit fór fram að ferðamanninum en hún bar ekki árangur. Meðal annars var notast við dróna, hunda og straumvatnsleitarfólk. Bíll ferðamannsins fannst við Hólaskóg en þaðan liggur vegur upp að útsýnisstað við fossinn. Leit var svo frestað á miðvikudagskvöldið.

Að sögn upplýsingafulltrúa Landsbjargar hefur þyrla Landhelgisgæslunnar verið kölluð út og brugðist er við útkallinu eins og þarna sé um mann í neyð að ræða.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Hannes Valle hefur játað svívirðileg brot

Hannes Valle hefur játað svívirðileg brot
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

50 handteknir í alþjóðlegri aðgerð gegn skipulagðri brotastarfsemi –  samstarf íslensku lögreglunnar við Europol

50 handteknir í alþjóðlegri aðgerð gegn skipulagðri brotastarfsemi –  samstarf íslensku lögreglunnar við Europol