fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Fréttir

Segir að Pútín hafi gert stór mistök

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 29. september 2022 05:47

Nú segist Pútín reiðubúinn til að semja um vopnahlé. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samkvæmt því sem leppstjórnir Rússa í Kherson, Zaporizjzja, Luhansk og Donetsk segja þá samþykkti mikill meirihluti íbúa þar að óska eftir að héruðin verði hluti af Rússlandi. Reiknað er með að Vladímír Pútín, Rússlandsforseti, tilkynnti um innlimun héraðanna í Rússland á næstu dögum. En það eru stór mistök af hans hálfu.

Þetta er mat Anders Puck Nielsen, hernaðarsérfræðings hjá danska varnarmálaskólanum. Í samtali við B.T. sagði hann að áður hafi Krím haft sérstaka stöðu, verið sérstakt, einstakt og vísar meðal annars til að Pútín hafi margoft sagt að hann sé reiðubúinn til að verja Krím með öllum tiltækum ráðum. Þar á meðal kjarnorkuvopnum.

En í tengslum við innlimun Kherson, Zaporizjzja, Luhansk og Donetsk í Rússland hefur Pútín einnig sagt að Rússland sé reiðubúið til að verja þessi nýju svæði með öllum tiltækum ráðum, þar á meðal kjarnorkuvopnum. Hann hefur einnig lagt áherslu á að hann sé ekki að blekkja þegar hann segir þetta.

„Með þessu er grafið undan sérstöðu Krím. Það er ekki mjög snjallt,“ sagði Nielsen.

Hann sagðist heldur ekki skilja af hverju Rússar hafi ákveðið að innlima héruðin á grunni atkvæðagreiðslna sem alþjóðasamfélagið segir ólöglegar. Það geti haft stór vandamál í för með sér fyrir Rússland.

„Pútín innlimar jú borgarastyrjöld með þessum fjórum héruðum sem Rússar hafa ekki einu sinni fulla stjórn á. Þetta getur opnað öskju Pandóru. Því þetta getur ýtt við öðrum svæðum í Rússlandi sem vilja kannski losna út,“ sagði hann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Gylfi furðar sig á frétt Morgunblaðsins – „Hrein og klár afvegaleiðun umræðunnar!“

Gylfi furðar sig á frétt Morgunblaðsins – „Hrein og klár afvegaleiðun umræðunnar!“
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Kjúklingaskítsfýla veldur Skagamönnum óþægindum – „Íbúar eiga ekki að þurfa að sætta sig við þetta. Punktur“

Kjúklingaskítsfýla veldur Skagamönnum óþægindum – „Íbúar eiga ekki að þurfa að sætta sig við þetta. Punktur“
Fréttir
Í gær

Ása föst í hryllingshúsinu: „Fólk gengur stöðugt framhjá húsinu, tekur myndir og bendir“

Ása föst í hryllingshúsinu: „Fólk gengur stöðugt framhjá húsinu, tekur myndir og bendir“
Fréttir
Í gær

Slysið í Danmörku: Minnast Íslendingsins sem lést

Slysið í Danmörku: Minnast Íslendingsins sem lést