fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Fréttir

Ellefu ára fórnarlambi kynferðisofbeldis neitað um þungunarrof – Krafa um afsögn dómara

Fókus
Þriðjudaginn 21. júní 2022 20:00

Háværar raddir eru um afsögn Zimmer dómara.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ellefu ára stúlku í Brasilíu hefur verið synjað um þungunarrof. Stúlkunni var nauðgað á heimili sínu í dreifbýli suðurhluta landsins en þungunarrof er ólöglegt í Brasilíu nema í undantekningartilfellum, sé um nauðgun að ræða eða líf móður í hættu.

Konur eiga yfir höfði sér eins til þriggja ára dóm fyrir að fara í þungunarrof og læknar og hjúkrunarfræðingar sem framkvæma þau eiga þriggja til fimm ára tukthúsvist vísa.

Nauðgunin átti sér stað fyrr á árinu og þegar að móðir stúlkunnar áttaði sig á stöðunni fór hún með dóttur sína á sjúkrahúsi í Florianopolis borgar þar sem læknir staðfesti þann 4. maí að telpan væri komin 22 vikur á leið. Starfsfólk sjúkrahússins neitaði aftur á móti að framkvæma þungunarrof og bar því fyrir að þrátt fyrir að nauðgun væri að ræða væri stúlkan of langt gengin. Reglur sjúkrahússins kveðja á um að aldrei megi framkvæma þungunarrof ef kona er gengin umfram 20 vikur.

Móðir stúlkunnar var ekki sátt við þau svör og leitaði til dómstóla þar sem málið fór á borð Joana Ribeiro Zimmer dómaraZimmer dómari kvað upp að telpan gæti ekki fengið þungunarrof og átaldi í leiðinni móðurina, og sagði að með ósk um þungunarrof væri móðirin ekki að ,,vernda” dóttur sína heldur ,,styðja hana við að fremja morð.”

Mikil mótmælaalda hefur gengið yfir Brasilíu eftir að málið komst í hámæli og hafa fjölmiðlar eftir lögfróðum þar í landi að ekkert sé að finna í lagabókstafnum sem komi í veg fyrir rétt stúlkunnar til þungunarrofs. Yfirvöld hafa nú hafið rannsókn, bæði á sjúkrahúsinu svo Zimmer dómara, en háværar raddir er um afsögn hennar.

Mæðgurnar dvelja nú í neyðarskýli af ótta við árásarmann eða árásarmenn en engar frekari upplýsingar hafa verið gefnar upp um hvort árásarmaðurinn sé tengdur stúlkunni né um hvort árásarmenn séu fleiri en einn.

Móðir stúlkunnar mun hafa gefið út að væri þær mæðgur ekki vistaðar í skýlinu myndi hún sjálf framkvæma þungunarrof á dóttur sinni.

Í síðustu viku fæddi 12 ára gömul stúlka í Bólivíu barn eftir að hafa verið neitað um þungunarrof. Stúlkunni hafði verið nauðgað af afa sínum sem nú situr í fangelsi. Barnið lést skömmu eftir fæðinguna.

Líkt og í Brasilíu vakt málið mikla athygli og eru raddir sífellt háværari um endurskoðun á lögum í löndum Suður-Ameríku þar sem mikill fjöldi stúlkna og kvenna er talinn látast árlega af völdum ólöglegs þungunarrofs..

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Sjáðu myndbandið: Sverrir Einar handtekinn og leiddur út í járnum í miðbænum

Sjáðu myndbandið: Sverrir Einar handtekinn og leiddur út í járnum í miðbænum
Fréttir
Í gær

Snorri og Patrik vekja hneykslun: Konan hugsi um börnin og karlinn um peningana – „Gömlukallaraus í ungum mönnum“

Snorri og Patrik vekja hneykslun: Konan hugsi um börnin og karlinn um peningana – „Gömlukallaraus í ungum mönnum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pálmatré raunhæft verkefni en aðeins eitt tré mun rísa

Pálmatré raunhæft verkefni en aðeins eitt tré mun rísa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kári Hansen skilaði inn meðmælum til forseta Íslands rafrænt

Kári Hansen skilaði inn meðmælum til forseta Íslands rafrænt
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Reiði vegna skemmdarverks á Suðurgötu: Málið verður tilkynnt lögreglu – Sjáðu myndina

Reiði vegna skemmdarverks á Suðurgötu: Málið verður tilkynnt lögreglu – Sjáðu myndina
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Tveir Bretar hætt komnir á Íslandi: Grét þegar hann sagði frá slysinu – Vinur hans enn á spítala

Tveir Bretar hætt komnir á Íslandi: Grét þegar hann sagði frá slysinu – Vinur hans enn á spítala
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Helga Þórisdóttir búin að ná meðmælendum

Helga Þórisdóttir búin að ná meðmælendum