Einn sjúklingur lést af völdum COVID-19 á Landspítala seinasta sólarhringinn. Þetta kemur fram á vef spítalans.
„Einn sjúklingur lést á síðasta sólarhring á Landspítala vegna Covid-19.
Landspítali vottar fjölskyldu hans samúð.“
Nú hafa alls 11 manns látist af völdum kórónuveirunnar hér á landi.