Síðustu mánuði hafa fjölmiðlar líkt og The New York Times og Chicago Tribune greint frá meintum brotum sjónvarpsstjörnunnar Jerry Harris. Sá á að hafa viðurkennt í skýrslutöku lögreglu að hafa sent og tekið við kynferðislegu efni frá tíu til fimmtán einstaklingum sem allir voru undir lögaldri. Auk þess hafi hann stundað kynlíf með fimmtán ára einstaklingi og borgað sautján ára einstaklingi fyrir að senda sér nektarmyndir.
Nú heldur vefmiðillinn The News Pocket því fram að einn brotaþola Jerry sé íslenskur drengur, sem hann hafi sannfært um að senda sér kynferðislegar myndir og myndbönd af sér.
Hinn bandaríski Jerry Harris er 21 árs gamall. Hann gerði garðinn frægan í Netflix-heimildaþáttaröðinni Cheer, sem fjallar um lífið í „klappstýruheiminum“. Þar vakti hann sérstaka athygli fyrir „lifandi og skemmtilegan“ persónuleika sinn.
Þrátt fyrir að játa ákveðnar gjörðir hafa Harris og lögfræðingar hans haldið því fram að hann sé saklaus í málinu. Þeir vilja meina að hann hafi ekki gerst sekur um kynferðislega áreitni eða önnur brot og halda því fram að hann hafi sjálfur verið undir lögaldri þegar meint brot áttu sér stað.
Tvíburabræður í Texas sem kærðu Harris fyrir ítrekaða áreitni, bæði í gegnum net og í raunheimum, segja að þeir hafi verið þrettán ára, en Harris nítján ára þegar áreitnin hófst. Móðir drengjanna hefur lýst Harris á þennan veg:
„Harris er að mínu mati hrein og klár ógn við börn.“
Fyrir nokkrum vikum bað alríkislögregla Bandaríkjanna, FBI, alla þá sem að teldu sig hafa verið fórnarlömb Jerry Harris að hafa samband og veita upplýsingar vegna málsins. Verði Harris dæmdur sekur gæti hann átt yfir höfði sér 30 ára fangelsisdóm.